Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 989/2019

Nr. 989/2019 23. október 2019

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, stað­fest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu náms­brauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntöku­skilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðal­námskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðal­námskrá fram­halds­skóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmati.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef Menntamálastofnunar:

https://mms.is/stadfestar-namsbrautalysingar.

2. gr.

Heiti námsbrautar Raðnúmer
Framhaldsskólabraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 1 (19-434-1-1)
Gull- og silfursmíði, gull- og silfursmiður, hæfniþrep 3 (19-324-3-8)
Hestaliðabraut, hestasveinn, hæfniþrep 2 (19-444-2-5)
Íþróttabraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (19-446-2-3)
Listnámsbraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (19-445-2-3)
Rennismíði, rennismiður, hæfniþrep 3 (19-326-3-8)
Stálsmíði, stálsmiður, hæfniþrep 3 (19-325-3-8)
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (19-435-1-12)
Stálsmiður, stálsmiður, hæfniþrep 3 (19-259-3-8)
Stúdentsbraut - listalína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-447-3-6)
Stúdentsbraut - alþjóðalína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-441-3-6)
Stúdentsbraut - viðskipta- og hagfræðilína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-440-3-6)
Stúdentsbraut - íþróttalína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-442-3-7)
Stúdentsbraut - hestalína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-443-3-7)
Stúdentsbraut - félagsgreinalína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-439-3-6)
Stúdentsbraut - náttúrufræðilína, stúdent, hæfniþrep 3 (19-438-3-6)
Vélvirkjun, vélvirki, hæfniþrep 3 (19-327-3-8)
Vélvirkjun, vélvirki, hæfniþrep 3 (19-397-3-8)
Vélvirkjabraut, vélvirki, hæfniþrep 3 (19-252-3-8)

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 23. október 2019.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Karitas H. Gunnarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 13. nóvember 2019