Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1211/2016

Nr. 1211/2016 13. desember 2016

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Flúða.

1. Almennt.

Verðskrá þessi gildir fyrir veitusvæði Hitaveitu Flúða.

Skattur á smásöluverð á heitu vatni samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta og virðisaukaskattur samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt bætast við gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma.

2. Varmaorka.

2.1 Fast gjald er háð afköstum rennslismælis en óháð töxtum að öðru leyti.

Fast gjald á mæli kr./dag
Mælastærð DN 15 46,95
Mælastærð DN 20 57,72
Mælastærð DN 25 75,45
Mælastærð DN 32 95,23
Mælastærð DN 40 113,61
Mælastærð DN 50 189,62

Fasta gjaldinu er dreift niður á tímabil reikninga.

2.2 Rúmmetragjald.

Varmaorka er afhent í formi heits vatns sem selt er samkvæmt rúmmetramælingu. Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða vegna lækkunar á hita vatnsins.

H 1. Almenn heitavatnsnotkun.

Taxtinn gildir fyrir upphitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

Sala um mæli kr./m³
Rúmmetragjald skv. mælingu 84,00

H 2.

Taxtinn gildir fyrir iðnaðarfyrirtæki og landbúnað.

Atvinnufyrirtæki til framleiðslu 67,46

H 3.

Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir.

Garðyrkja 30,47

H 4. Heimæðagjöld

Heimæðagjöld skiptast eftir málstærð heimtaugar.

Heimæðagjöld – almenn kr.
Málstærð DN 20 mm 219.674
Málstærð DN 25 mm 270.539
Málstærð DN 32 mm 406.274
Málstærð DN 40 mm 811.107
Málstærð DN 50 mm 1.346.905
   
Heimæðagjöld – sumarhús kr.
20 mm 531.402
25 mm 950.851

Heimæðagjöld fyrir lengri heimæðar en 25 m skal reikna sérstaklega.

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

Þar sem heimæðagjöld og stofngjöld reiknast sérstaklega greiðast þau þannig að við upphaf verksins 65% af kostnaðaráætlun og 35% greiðist þegar lagningu er lokið.

3. Önnur gjöld og ákvæði.

Gjald fyrir aukaálestur hjá notanda 2.248 kr.
Lokunargjald 4.371 kr.

Við stækkun atvinnuhúsnæðis skal semja sérstaklega um gjald vegna stækkunar á heimtaugum og aukningu á vatnsnotkun.

Þeir sem taka vatn gegnum gróðurhús til upphitunar á pökkunar- og geymsluhúsnæði, skulu greiða fast gjald sem hér segir:

Fyrir hvern m³ húsnæðis á mánuði  31,39 kr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var í veitustjórn þann 31. október 2016 og síðan af sveitarstjórn Hrunamannahrepps 3. nóvember 2016 er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum til að öðlast gildi við birtingu. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá nr. 4/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. desember 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016