Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 869/2017

Nr. 869/2017 11. október 2017

AUGLÝSING
um samþykkt breytinga á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingar á deiliskipulagi sem hér segir: 

Deiliskipulag frá Reykjalundarvegi að Húsadal.
Breytingin snýr að lóðunum nr. 20-30 við Reykjahvol.

Deiliskipulag með Varmá, lóðin Bjarg.
Breytingin felur í sér að heimil viðbygging stækkar úr 80 fm í 400 fm og hámarksbyggingarmagn er aukið úr 220 fm í 525 fm. Byggingarreitur breytist ekki.

Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 11. október 2017,

Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 12. október 2017