Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 340/2018

Nr. 340/2018 6. mars 2018

AUGLÝSING
um staðfestingu námsbrautarlýsinga framhaldsskóla.

1. gr.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, stað­fest eftirfarandi námsbrautarlýsingar. Staðfesting felur í sér að lýsing á uppbyggingu náms­brauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntöku­skilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, grunnþáttum og lykilhæfni og námsmati sé í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla. Hinar staðfestu námsbrautarlýsingar teljast þar með hluti af aðal­námskrá framhaldsskóla, sbr. auglýsingu nr. 674/2011.

Staðfestingin tekur ekki til einstakra áfangalýsinga heldur lýsingar á uppbyggingu námsbrauta, tengslum við atvinnulíf og/eða önnur skólastig, uppbyggingu náms á hæfniþrep, inntökuskilyrðum og skilyrðum um framvindu náms, upplýsingum um grunnþætti, lykilhæfni og námsmat.

Skólar bera ábyrgð á að áfangalýsingar námsbrauta og kennsla falli að hæfniviðmiðum brautar og þeim ramma sem aðalnámskrá setur skólastarfi.

Nánari upplýsingar um námsbrautir má finna á vef ráðuneytisins:

https://www.stjornarradid.is/default.aspx?PageID=5ca2fcac-d742-11e6-9409-005056bc4d74.

2. gr.

Heiti námsbrautar Raðnúmer
Afreksíþróttabraut - bóknám, stúdent, hæfniþrep 3 (18-298-3-6)
Bifreiðasmíði, bifreiðasmiður, hæfniþrep 3 (18-300-3-8)
Bifvélavirkjun, bifvélavirki, hæfniþrep 3 (18-301-3-8)
Félagsfræðabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-256-3-6)
Félagsgreinabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-376-3-6)
Framhaldsnám sjúkraliða í sérhæfðum störfum í heilbrigðisþjónustu,
  framhaldsnám heilbrigðisgreina, hæfniþrep 4
(18-151-4-11)
Framhaldsskólabraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (18-311-2-3)
Framhaldsskólabraut - fornám, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 1 (18-293-1-1)
Framhaldsskólabraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (18-381-2-3)
Framhaldsskólabraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 1 (18-371-1-1)
Framhaldsskólabraut 1, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (18-361-2-3)
Hagnýt margmiðlun, viðbótarnám við framhaldsskóla, hæfniþrep 4 (18-53-4-11)
Hestaliðabraut, hestasveinn, hæfniþrep 2 (18-353-2-5)
Íþrótta- og lýðheilsubraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-342-3-6)
Kjörnámsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-382-3-6)
Læknaritarabraut, læknaritari, hæfniþrep 3 (18-166-3-8)
Málabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-255-3-6)
Mála- og menningarbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-375-3-6)
Menntabraut, framhaldsskólapróf, hæfniþrep 2 (18-312-2-3)
Náttúrufræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-257-3-6)
Náttúrufræðibraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-385-3-6)
Opin braut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-254-3-6)
Opin stúdentsbraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-363-3-6)
Raungreinabraut, stúdent, hæfniþrep 3 (18-377-3-6)
Stafræn hönnun, viðbótarnám við framhaldsskóla, hæfniþrep 4 (18-191-4-11)
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (18-338-1-12)
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (18-365-1-12)
Starfsbraut, starfsbraut, hæfniþrep 1 (18-369-1-12)

3. gr.

Eftirfarandi námsbraut, sbr. auglýsingu í Stjórnartíðindum nr. 1025/2017 fellur úr gildi:

Heiti námsbrautar: Raðnúmer:
Íþrótta- og lýðheilsubraut, stúdent, hæfniþrep 3 (17-352-3-6)

4. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 6. mars 2018.

Lilja D. Alfreðsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 6. apríl 2018