Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 2/2017

Nr. 2/2017 2. janúar 2017

AUGLÝSING
um samþykkt breytinga á deiliskipulagi í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt eftirtaldar breytingar á deiliskipulagi sem hér segir:

Reykjahvoll 12.
Breyting í deiliskipulagi sem tekur til lóðarinnar að Reykjahvoli 12. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður um 3 metra til norðurs. Einnig verður leyft að byggja allt að 230 m² hús á lóðinni í stað 150 m² sem leyfilegt er skv. núverandi skipulagi.

Ástu Sólliljugata 15.
Breyting í deiliskipulagi sem tekur til lóðarinnar að Ástu Sólliljugata 15. Í breytingunni felst að í stað tveggja hæða einbýlishúss með inngangi á efri hæð verði byggt einnar hæðar einbýlishús. Að öðru leyti breytast skilmálar ekki.

Ofangreindar breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 2. janúar 2017,

Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 4. janúar 2017