Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 630/2021

Nr. 630/2021 18. maí 2021

REGLUGERÐ
um úthlutun sjónglerja eða snertilinsa.

1. gr.

Úthlutun sjónglerja eða snertilinsa.

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu úthlutar nauðsynlegum sjónglerjum eða snertilinsum með greiðsluþátttöku stofn­unar­innar í samræmi við ákvæði þessarar reglugerðar til einstaklinga sem ekki eiga rétt á sér­hæfðum hjálpartækjum sem er úthlutað á vegum Tryggingastofnunar eða Heyrnar- og talmeina­stöðvar eða ef slík hjálpartæki eru ekki fullnægjandi.

 

2. gr.

Réttur til sjónglerja eða snertilinsa.

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu úthlutar nauðsynlegum sjónglerjum eða snertilinsum með greiðsluþátttöku stofn­unar­innar, til:

  1. Barna yngri en 18 ára.
  2. Fullorðinna einstaklinga sem:
    1. Eru augnsteinslausir (aphaki).
    2. Eru með tvísýni og þurfa á prismagleraugum að halda.
    3. Eru hánærsýnir (myopia gravis) > -12,00.
    4. Eru háfjarsýnir (microphathalmia) > +10,00.
    5. Eru með lausa augasteina (luxatio lentis).
    6. Þurfa að breyta gleraugnastyrk umtalsvert, að mati sérgreinalæknis í augn­lækn­ingum, vegna augnsjúkdóma eða skurðaðgerða, svo sem keiluglæru (keratoconus), eftir horn­himnu­ígræðslu eða nethimnulossaðgerð.

 

3. gr.

Greiðsluþátttaka vegna sjónglerja eða snertilinsa.

Einstaklingar skulu greiða að fullu kostnað við sjóngler eða snertilinsur, sbr. 2. gr.

Þrátt fyrir 1. mgr. skal Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu taka þátt í kostnaði einstaklinga, sem eru sjúkratryggðir sam­kvæmt lögum um sjúkratryggingar, við sjóngler eða snertilinsur. Þátttaka stofnunarinnar getur aldrei verið hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði glerja eða linsa samkvæmt framlögðum reikn­ingi.

Hámark greiðsluþátttöku Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstak­linga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu samkvæmt 2. mgr. er tilgreind í fylgiskjali við reglu­gerð þessa, sbr. þó 4. gr. Börn á aldrinum 0 – 6 ára eiga rétt á hámarksgreiðsluþátttöku sem er til­greint í fylgiskjali við reglugerð þessa. Fyrir börn 7 ára og eldri og fullorðna getur greiðsluþátttaka stofn­unar­­innar aldrei orðið hærri en 50% af hámarki greiðsluþátttöku.

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu tekur ekki þátt í kostnaði við sjóngler eða snertilinsur fyrir einstaklinga sem ekki eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar, nema í gildi sé samningur um þjónustuna við það ríki sem þeir koma frá. Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur telst sjúkratryggður hér á landi samkvæmt lögunum.

 

4. gr.

Tíðni úthlutunar sjónglerja eða snertilinsa.

Einstaklingur getur mest fengið úthlutað sjónglerjum eða snertilinsum með greiðsluþátttöku Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnar­skerðing skv. 3. gr. sem hér segir:

  1. barn á aldrinum 0 – 6 ára, tvisvar á ári.
  2. barn á aldrinum 7 – 12 ára, árlega.
  3. barn á aldrinum 13 – 17 ára, annað hvert ár.
  4. fullorðnir einstaklingar, þriðja hvert ár.

Breytist sjónlag sem nemur ≥ +/- 0,75 eða meira hjá einstaklingi skv. c-lið skal greiðsluþátttaka ríkisins vera skv. b-lið. Breytist sjónlag umtalsvert að mati sérgreinalæknis í augnlækningum áður en ofangreindum tímabilum lýkur er Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstak­­linga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu heimilt að ákveða tíðari úhlutun en mælt er fyrir um í 1. mgr.

Greiðsluþátttaka fer ekki fram fyrir bæði sjóngler og snertilinsur til sama einstaklings innan sama tímabils.

 

5. gr.

Málsmeðferð.

Einstaklingar skulu leggja fram umsókn um úthlutun sjónglerja eða snertilinsa með greiðslu­þátttöku Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til stofnunarinnar. Umsókn skal leggja fram á sérstöku rafrænu umsóknar­eyðublaði, þar sem koma fram ástæður gleraugnanotkunar (sjúkdómsgreining), styrkleiki og verð glerja eða snertilinsa. Með umsókn skal leggja fram staðfestingu frá augnlækni eða sjóntækja­fræð­ingi á þörf fyrir sjóngler eða snertilinsur. Um meðferð umsókna fer samkvæmt ákvæðum stjórn­sýslu­­laga nr. 37/1993.

Einstaklingar sjá sjálfir um val á sjónglerjum og snertilinsum og hafa með höndum alla umsýslu í tengslum við að útvega gler og linsur, þ.m.t. að leggja út fyrir kostnaði sem nemur greiðsluþátttöku Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

 

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4., 9. og 11. gr. laga nr. 160/2008 um lög um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og öðlast gildi þann 1. júní 2021.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 18. maí 2021.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 31. maí 2021