Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 195/2015

Nr. 195/2015 9. febrúar 2015
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Dalvíkur.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir frá og með 1. mars 2015 fyrir orkuveitusvæði Hitaveitu Dalvíkur. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts og orkuskatts.

2. gr.

Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:

 

a)

Orkugjald skv. orkumæli

kr.

2,30

 pr. kwst.

 

b)

Orkugjald skv. vatnsmæli, Dalvík

kr.

88,70

 pr. m³

 

c)

Orkugjald skv. vatnsmæli, Árskógsströnd

kr.

123,81

 pr. m³

 

d)

Orkugjald skv. vatnsmæli, sundlaugar

kr.

35,45

 pr. m³

 

e)

Lokunargjald

kr.

6.704

 

Þeim viðskiptavinum Hitaveitu Dalvíkur sem nota meira en 25.000 m³ (106.000 kwst.) á ári er veittur 30% afsláttur af gjaldskrá af því magni sem er umfram 25.000 m³ (106.000 kwst.) á hvern mæli á Dalvík. Vegna hærra hitastigs á heita vatninu á Árskógsströnd er sambærilegt magn þar 20.000 m³ (106.000 kwst.).

3. gr.

Viðskiptavinir skulu greiða fast gjald í formi mælaleigu, gjaldið er daggjald og er breytilegt eftir stærð mæla. Mælaleigan er sem hér segir:

Stærð mælis

Mælagjald í kr. á dag

15 mm

31,50

20 mm

42,21

25 mm

62,86

40 mm

78,89

50 mm

98,75

65 mm

111,23  

80 mm

125,53  

100 mm  

141,67  

4. gr.

Heimæðagjald Hitaveitu Dalvíkur skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

Fyrir hús allt að 400 m³ að utanmáli og heimæð allt að 50 m

kr.

306.327

og á m³ þar yfir

kr.

385,33

og á m fram yfir 50 m

kr.

6.704

Rúmmál húsa miðast við stærðir samkvæmt reglum um skráningu fasteigna hjá Þjóðskrá Íslands. Heimæðagjöld skal reikna af öllu húsrými á viðkomandi lóð, hvort sem það verður tengt hitaveitunni eða ekki.

Heimæðagjald hitaveitu fyrir útihús tengd landbúnaði skal vera með eftirfarandi hætti:

 

a.

Mjólkurhús/fjós greiðir lágmarksgjald

kr.

306.327

 

b.

Fyrir hesthús að 700 m³ skal greiða lágmarksgjald. Aðilum er heimilt að sameinast um inntak.

  

Ef um er að ræða lagnir í dreifða byggð eða samkvæmt sérsamningi er vísað til 19. gr. reglu­gerðar fyrir Hitaveitu Dalvíkur. Gjald þetta skal þó aldrei vera lægra en nemur lágmarks­heimæðagjaldi hitaveitunnar.

5. gr.

Heimæðagjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2014, 120,8 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.

6. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með 10 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem van­skilunum veldur, hverju sinni kr. 6.044.

7. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá fyrir Hitaveitu Dalvíkur nr. 1235/2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. febrúar 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 26. febrúar 2015