Samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967, hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Kjósarveitna ehf., er taka á gildi við birtingu í Stjórnartíðindum:
3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
Heimæðargjald Kjósarveitna ehf., er sem hér segir:
Virðisaukaskattur er 11% á heimæðargjöld. Ekki er hleypt á nema heimæðargjald sé að fullu greitt.
|
Kr. |
Með 11% vsk |
Grunnur |
Heimæðargjald með mæli |
1.525.000 |
1.692.750 |
kr. |
Heimæðargjald með hemli |
960.000 |
1.065.000 |
kr. |
Þar sem lengd heimæðar er 50 metrar eða styttri, gildir ofangreind verðskrá. Kostnaður vegna lengri heimæða en 50 metra verður metinn í hverju tilviki fyrir sig.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. júní 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Hreinn Hrafnkelsson.
|