Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1311/2023

Nr. 1311/2023 27. nóvember 2023

AUGLÝSING
um veiðigjald 2024.

Veiðigjald á landaðan afla frá og með 1. janúar til 31. desember 2024 nemur í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla þeim fjárhæðum sem hér segir:

Tegund kr./kg
Þorskur 26,66
Ýsa 22,28
Ufsi 12,14
Karfi/gullkarfi 12,44
Langa 17,55
Keila 5,12
Steinbítur 15,07
Hlýri 16,07
Skötuselur 44,72
Skarkoli 40,49
Þykkvalúra/sólkoli 38,62
Langlúra 24,06
Síld 4,12
Loðna 3,91
Kolmunni 3,20
Makríll 1,79
Humar/leturhumar 61,09
Djúpkarfi 4,71

 

Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 70.174 kr., ii) hrefna 11.228 kr. Veiðigjald á sjávargróður er sem hér segir: 702 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).

Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiðigjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 

Matvælaráðuneytinu, 27. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2023