Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 726/2017

Nr. 726/2017 14. ágúst 2017

AUGLÝSING
um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps.

1. gr.

Frá og með 16. ágúst 2017 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, Eyja- og Miklaholtshreppi til Súða­víkur­hrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 322/2017, um strandveiðar fiskveiðiárið 2016/2017.

2. gr.

Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a-lið 2. gr. laga nr. 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftir­breytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Fiskistofu, 14. ágúst 2017.

Þorsteinn Hilmarsson,
sviðsstjóri þjónustu- og upplýsingasviðs.

Jón Valgeir Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 14. ágúst 2017