Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 357/2018

Nr. 357/2018 22. mars 2018

REGLUGERÐ
um (12.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 72. og 73. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1558 frá 14. september 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka efnið brómelaín með tilliti til hámarksgildis leifa. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 13/2018, frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 217.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1559 frá 14. september 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka hámarksgildi leifa fyrir efnið alarelín. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefnd­ar­innar nr. 13/2018, frá 9. febrúar 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 8. mars 2018, bls. 219.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. mars 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 12. apríl 2018