1. gr. Meginreglur. Bæjarstjórn Seltjarnarneskaupstaðar hefur ákveðið að setja gjaldskrá til að innheimta kostnað vegna vinnu við útgáfu á framkvæmdaleyfi og skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna leyfisskyldra framkvæmda. Bæjarstjórn getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á viðkomandi svæði eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið. 2. gr. Skilgreiningar. Afgreiðslugjald: Gjald sem greitt er við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi og skipulagsbreytingar. Í gjaldinu felst kostnaður sveitarfélagsins við móttöku og yfirferð erindisins. Gjaldið er ekki endurkræft þótt umsókn sé dregin til baka eða synjað. Umsýslu- og auglýsingakostnaður: Kostnaður sveitarfélagsins við afgreiðslu umsóknar, birtingar auglýsinga og annarra umsýslu. Breytingakostnaður: Kostnaður sveitarfélagsins við gerð nýs deiliskipulags eða breytingar á gildandi aðal- eða deiliskipulagsuppdráttum. 3. gr. Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga. Afgreiðslugjald | kr. | 9.500 | Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 36. gr. | kr. | 130.000 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. | kr. | 120.000 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. | kr. | 60.000 |
4. gr. Kostnaður vegna deiliskipulags. 4.1 Nýtt deiliskipulag Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. | Samkvæmt reikningi1 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. | kr. | 120.000 |
4.2 Verulegar breytingar á deiliskipulagi Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. | Samkvæmt reikningi1 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. | kr. | 120.000 |
4.3 Óverulegar breytingar á deiliskipulagi Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. | Samkvæmt reikningi1 | Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 2. mgr. 43. gr. | kr. | 60.000 | __________ 1 Vinna samkvæmt reikningi skal byggja á áætlun skipulagsstjóra um umfang verkefnisins sem umsóknaraðili samþykkir.Reikningur verður síðan gerður í samræmi við raunverulegan kostnað en getur ekki verið hærri en fjárhæð samkvæmt samþykktri áætlun. |
5. gr. Grenndarkynning. Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna grenndarkynninga, | | | sbr. 44. gr. | kr. | 30.000 |
6. gr. Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis. Afgreiðslugjald | kr. | 9.500 | Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga | | | um mat á umhverfisáhrifum | kr. | 110.000 | Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir | kr. | 65.000 |
7. gr. Breyting fjárhæða. Fjárhæðir í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í janúar 2012 (112,3 stig) og skulu breytast 1. janúar hvert ár í samræmi við byggingarvísitölu. 8. gr. Gildistaka. Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarneskaupstaðar, 24. október 2012. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri. |