Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 238/2022

Nr. 238/2022 25. febrúar 2022

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 760/2021, um styrki vegna hjálpartækja.

1. gr.

5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki styrki vegna hjálpartækja til þeirra sem dveljast á heil­brigðis­stofnunum, öldrunarstofnunum eða sambærilegum stofnunum. Í þeim tilvikum skal við­kom­andi sjúkrahús eða heimili sjá hlutaðeigandi einstaklingum fyrir öllum hjálpartækjum, sbr. t.d. reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu og 5. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, með síðari breytingum.

Þrátt fyrir 1. mgr. greiða Sjúkratryggingar Íslands styrki til þeirra sem dveljast á öldrunar­stofn­unum vegna eftirtalinna hjálpartækja: Hjálpartæki til öndunarmeðferðar (04 03, að undan­skildum öndunarmæli 04 03 30), hjálpartæki við blóðrásarmeðferð (04 06), stoðtæki (06), stóma­hjálpartæki (09 15 og 09 18), göngugrindur (12 06), hjólastólar og fylgihlutir fyrir hjólastóla (12 22, 12 23 06 og 12 24) og tölvur til sérhæfðra tjáskipta (22 33 03). Hið sama á við um einnota vörur fyrir einstaklinga með gildandi innkaupaheimild frá Sjúkratryggingum Íslands á meðan þeir dveljast þar til skamms tíma (skammtímadvöl), þó að hámarki sex vikur, enda sé þörfin fyrir vörurnar ekki beinlínis vegna inn­lagnarinnar.

Einstaklingur sem útskrifast af sjúkrahúsi og býr í heimahúsi á rétt á styrk frá Sjúkratryggingum Íslands vegna kaupa á hjálpartækjum sem beinlínis er aflað til að viðkomandi geti útskrifast heim.

Þegar einstaklingur dvelst á stofnun ber að skila skilaskyldum hjálpartækjum til Sjúkratrygginga Íslands að undanskildum þeim tækjum sem talin eru upp í 2. mgr. Þeim skal skilað þegar einstaklingur þarf ekki lengur á þeim að halda.

 

2. gr.

Eftirfarandi breyting verður á fylgiskjalinu „Hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands“ með reglu­gerðinni:

Flokkur 04 06 Hjálpartæki við blóðrásarmeðferð orðast svo:

Að hámarki eru samþykkt 3 pör af þrýstisokkum á 12 mánaða tímabili, þrýstingur skal að lágmarki vera 18 mmHg. Að jafnaði eru samþykktar 2 þrýstiermar á 12 mánaða tímabili. Aðeins er greitt fyrir þrýstisokka/þrýstibúnað vegna bruna, langvinnra alvarlegra bláæða/sogæðavandamála eða langvarandi bjúgsöfnunar vegna lömunar. Fyrir börn í vexti eru þrýstisokkar/þrýstibúnaður greiddur 90%, en fyrir aðra 70%. Vegna bruna er þessi búnaður greiddur 100%. Hámarksstyrkur vegna tilbú­inna þrýstisokka er kr. 11.600 m.v. 100% greiðsluþátttöku en annars hlutfall af þeirri upphæð (90% kr. 10.450 og 70% kr. 8.150). Sérsaumaðir þrýstisokkar eru samþykktir þegar um er að ræða veruleg líkamleg frávik vegna sjúkdóma, byggingarlags eða slysa og sogæðabjúgs, stig I. Styrkupphæð slíkra sokka er tvöföld miðað við tilbúna þrýstisokka. Sérsaumaðir þrýstisokkar úr flatsaum eru samþykktir fyrir notendur með staðfestan sogæðabjúg (lymphoedema) stig II-III og skal sjúkdómsgreining staðfest af æðaskurðlækni að undangengnum rannsóknum. Styrkupphæð slíkra sokka er byggð á kostnaðarmati hverju sinni.

04 06 06 Þrýstisokkar/þrýstibúnaður fyrir handleggi, fætur og bol 70/90/100%
04 06 09 Loftfylltur þrýstibúnaður 70/100%
04 06 90 Loftdæla fyrir þrýstibúnað 70/100%

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. mars 2022.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 25. febrúar 2022.

 

Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.

Guðlaug Einarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. febrúar 2022