Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1054/2019

Nr. 1054/2019 13. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.

1. gr.

Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að kveða á um tímabundnar ráðstafanir sem gilda um vöru­flutn­inga á vegum milli Evrópska efnahagssvæðisins og Bretlands í kjölfar útgöngu Bretlands úr Evrópu­sambandinu.

2. gr.

Innleiðing.

Við 20. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/501 um sameiginlegar reglur til að tryggja grunntengjanleika í vöruflutningum á vegum að því er varðar útgöngu Sameinaða konungs­ríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands úr Sambandinu frá 25. mars 2019, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 105/2019 frá 11. apríl 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 37, frá 16. maí 2019, bls. 166-175.

3. gr.

Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 11. gr., sbr. 34. gr. laga nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi og öðlast gildi þann dag er Bretland gengur úr Evrópusambandinu án útgöngu­samnings.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. nóvember 2019.

 F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2019