Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 566/2021

Nr. 566/2021 30. apríl 2021

REGLUGERÐ
um flutning fjárheimilda A-hluta á milli ára.

1. gr.

Markmið og tilgangur.

Tilgangur reglugerðar þessarar er að skýra hlutverk og ábyrgð þeirra sem vinna að ákvörðun um ráðstöfun árslokastöðu milli ára, sbr. 30. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál.

Markmið reglugerðarinnar er að treysta faglega málsmeðferð, samræmd vinnubrögð, hag­kvæmni og gæði við undirbúning og framkvæmd þessa verkefnis.

 

2. gr.

Fjárheimild.

Fjárheimildir málaflokka fjárlaga skiptast í fjárveitingar til ríkisaðila og verkefna. Þær greinast í rekstrarframlag, rekstrartilfærslu, fjármagnstilfærslu og fjárfestingarframlag, sbr. 5. tl. 3. gr. laga um opinber fjármál. Rekstrarframlag er mismunur rekstrargjalda og rekstrartekna.

 

3. gr.

Rekstrarliðir.

Séu hrein rekstrargjöld lægri en rekstrarframlag er heimilt að halda afgangi sem nemur allt að 4% af rekstrargjaldafjárveitingu ársins. Þó skal uppsöfnuð hrein eign rekstrarliða í árslok aldrei vera umfram 10% af rekstrargjaldaframlagi ársins og fluttri fjárveitingu frá fyrra ári. Hrein eign umfram hámark fellur niður, í samræmi við 8. gr.

Séu útgjöld rekstrarliða umfram fjárveitingar, þrátt fyrir aðgerðir skv. 7. gr., færist halli yfir á næsta ár.

 

4. gr.

Framlög til fjárfestinga.

Staða fjárfestingaliða í árslok færist almennt til næsta árs nema verkefni sé lokið eða hætt sé við fjárfestingarverkefni, þá fellur ónýtt fjárveiting niður, í samræmi við 7. gr.

 

5. gr.

Tilfærsluliðir og reiknaðir liðir.

Árslokastöður tilfærsluliða flytjast almennt ekki á milli ára.

Árslokastöður tiltekinna verkefna sem ráðast af hagrænum forsendum, metnum stærðum í reikn­ingshaldslegu uppgjöri eða öðrum þáttum utan ákvörðunarvalds ráðherra, flytjast ekki á milli ára. Gerð er breyting á árslokastöðu skv. 7. gr. reglugerðar þessarar.

Hlutaðeigandi ráðherra skal gera grein fyrir því í ársskýrslu sinni hvaða skýringar eru á ársloka­stöðu sem felld er niður skv. 2. mgr. og hvaða aðgerðum var beitt til að draga úr umframgjöldum innan ársins.

 

6. gr.

Varasjóðir.

Ef ríkisaðili eða verkefni hefur fengið sérstaka fjárveitingu úr almennum varasjóði á árinu, aðra en launa- eða verðlagsbætur, skal fella óráðstafaða og óskuldbundna fjárveitingu í árslok niður, auk óráðstafaðrar stöðu varasjóðs hlutaðeigandi málaflokks.

Varasjóður málaflokks skal nýttur til að mæta útgjöldum einstaka ríkisaðila eða verkefna mála­flokksins, umfram fjárveitingar ársins.

Sé afgangur í varasjóði málaflokks eftir að umframútgjöld innan málaflokks hafa verið jöfnuð er heimilt að flytja afgangsstöðu milli ára. Þó skal hrein eign aldrei vera umfram 4% af rekstrar­gjaldafjárheimild málaflokks. Hrein eign varasjóðs málaflokks umfram hámark og árslokastaða almenns varasjóðs fellur niður í samræmi við 7. gr.

 

7. gr.

Breyting á árslokastöðu.

Breytingar á árslokastöðu í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar skal færa til hækkunar eða lækkunar á fjárveitingu næsta árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið getur við sérstakar aðstæður, heimilað að ríkisaðili eða verk­efni haldi eftir afgangi þrátt fyrir ákvæði 3.–6. gr.

 

8. gr.

Birting ákvörðunar um ráðstöfun árslokastöðu.

Með ríkisreikningi skal birta yfirlit sem sýnir óráðstafaðar fjárheimildir og umframútgjöld sem færast milli ára, skiptingu þeirra í fjárveitingar til ríkisaðila í A-hluta og verkefna og í varasjóði málaflokka og sundurliðun breytinga sem gerðar eru á fjárveitingum skv. 7. gr.

Fjármála- og efnahagsráðherra auglýsir ákvörðun um ráðstöfun árslokastöðu í Stjórnartíðindum.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 67. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, og öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 30. apríl 2021.

 

F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Viðar Helgason.


B deild - Útgáfud.: 19. maí 2021