Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 888/2022

Nr. 888/2022 13. júlí 2022

REGLUR
um eftirlit með notkun innri aðferða við útreikning á eiginfjárkröfum fjármálafyrirtækja.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem hafa heimild Fjármálaeftirlitsins til að beita innri aðferðum við mat á áhættuþáttum í útreikningi á áhættugrunni skv. 109. gr. ee laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og um eftirlit með notkun innri aðferða.

 

2. gr.

Upplýsingagjöf og eftirlit með notkun innri aðferða.

Fjármálafyrirtæki, sem skylt er að veita Fjármálaeftirlitinu og Evrópsku bankaeftirlitsstofnuninni upplýsingar um notkun innri aðferða skv. 109. gr. hh laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, skal skila gögnum í samræmi við reglugerð (ESB) 2016/2070, með síðari breytingum, sbr. 3. gr. Gögnum skal skilað á því formi og með þeirri tíðni sem tilgreind er í reglugerðinni.

Um mat Fjármálaeftirlitsins á gæðum innri aðferða fjármálafyrirtækja, skv. 109. gr. ff laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, og miðlun þessara mata á milli eftirlitsstjórnvalda, fer samkvæmt reglugerð (ESB) 2017/180, sbr. 3. gr.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2070 frá 14. september 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir sniðmát, skilgreiningar og upplýsingatæknilausnir sem stofnanir eiga að nota við skýrslugjöf til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar og lögbærra yfirvalda í samræmi við 2. mgr. 78. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/180 frá 24. október 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir viðmiðunarmatsstaðla eignasafns og málsmeðferðir við miðlun á mati, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 355-363.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1486 frá 10. júlí 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/2070 að því er varðar viðmiðunareignasöfn og leiðbeiningar fyrir skýrslugjöf, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/688 frá 23. mars 2018 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/2070 að því er varðar viðmiðunareignasöfn, sniðmát fyrir skýrslugjöf og leiðbeiningar fyrir skýrslugjöf, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/439 frá 15. febrúar 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/2070 að því er varðar viðmiðunareignasafn, skýrslusniðmát og skýrslugjafarfyrirmæli sem beita á í Sambandinu fyrir skýrslugjöfina sem um getur í 2. mgr. 78. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2020 frá 7. febrúar 2020.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1971 frá 13. september 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2070 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir sniðmát, skilgreiningar og upplýsingatæknilausnir sem stofnanir eiga að nota við skýrslugjöf til Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar og lögbærra yfirvalda í samræmi við 2. mgr. 78. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2022 frá 29. apríl 2022.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2017 frá 13. september 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/2070 að því er varðar viðmiðunareignasafn, skýrslusniðmát og skýrslugjafarfyrirmæli sem beita á í Sambandinu fyrir skýrslugjöfina sem um getur í 2. mgr. 78. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 144/2022 frá 29. apríl 2022.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2070, 2017/1486, 2018/688, 2019/439, 2021/1971 og 2021/2017 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32016R2070, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 328, þann 2. desember 2016, bls. 1-1422;
  2. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32017R1486, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 225, þann 31. ágúst 2017, bls. 1-2833;
  3. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32018R0688, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 124, þann 18. maí 2018, bls. 1-6351;
  4. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32019R0439, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 90, þann 29. mars 2019, bls. 1-4970;
  5. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R1971, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 412, þann 19. nóvember 2021, bls. 1-2763;
  6. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R2017, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 424, þann 26. nóvember 2021, bls. 1-2861.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 9. tölul. 1. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 791/2022 um eftirlit með notkun innri aðferða við útreikning á eiginfjárkröfum fjármálafyrirtækja.

 

Seðlabanka Íslands, 13. júlí 2022.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 27. júlí 2022