Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1221/2019

Nr. 1221/2019 9. desember 2019

REGLUR
ríkisskattstjóra um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2020.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2020 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2020.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrar­tekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2020 er sem hér segir:

Tegund Krónur   Eining
Mjólk   90   pr. lítra
Egg 505   pr. kg
Kartöflur 110   pr. kg
Rófur 180   pr. kg
Gulrætur 362   pr. kg
Lambakjöt 407   pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 159   pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 110   pr. kg
Ungnautakjöt 643   pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 406   pr. kg
Folaldakjöt 294   pr. kg
Annað kjöt af hrossum 108   pr. kg
Grísakjöt 451   pr. kg
Annað svínakjöt 223   pr. kg
Kjúklingar 383   pr. kg
Annað fuglakjöt 628   pr. kg
Lax og silungur 692   pr. kg
Annar fiskur 320   pr. kg

Reykjavík, 9. desember 2019.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2019