Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 141/2019

Nr. 141/2019 8. febrúar 2019

AUGLÝSING
(III) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Dalvíkurbyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Dalvíkur, Árskógssands og Hauganess með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á þannig: 30% úthlutaðs byggðakvóta byggðarlags skal skipt jafnt á alla þá báta úr við­kom­andi byggðarlagi sem sækja um byggðakvóta og uppfylla að öðru leyti ákvæði 1. gr. Óski einhver eftir tilteknu magni kvóta, sem er minna en hann á rétt á samkvæmt þessu ákvæði, þá skiptast eftirstöðvar þess hluta byggðakvótans jafnt milli hinna umsækjend­anna. 70% byggðakvóta byggðar­lagsins skal skipt hlutfallslega miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitar­félagsins á tíma­bilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018. Ekkert skip fær þó meira en 35% af þeim 70% sem skipt er samkvæmt lönduðum afla.
  b) Ákvæði 1. og 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019. Skilyrði þess að afla teljist landað til vinnslu er að honum sé haldið aðskildum frá öðrum afla, ásamt því að vera vigtaður og skráður sérstaklega við vigtun á hafnarvog. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari. Eigandi fiskiskips skal gera skriflegan samn­ing við fiskkaupanda um magn sem landað verður til vinnslu hjá viðkomandi vinnslu­aðila, þar sem fram kemur að vinnsluaðili skuldbindur sig til þess að vinna aflann, þó er vinnslu­aðila heimil jöfn skipti, miðað við þorskígildisstuðla, á tegundum við annan vinnslu­aðila, og komi þá slík fyrirætlan fram í þeim samningi sem eigandi fiski­skips gerir við fisk­kaupanda, og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til stað­festingar.

Fjallabyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Siglufjarðar og Ólafsfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði a-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnu­skyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, við lok umsóknar­frests og eru undir 1.000 brúttótonn að stærð.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess afla­marks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan við­komandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018, þó að hámarki 70.000 þorskígildiskíló á bát.
  c) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.
  e) Við ákvæði 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist: Heimil eru skipti á fiski í jöfnum þorsk­ígildum milli fisk­vinnslna.

Tálknafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Tálknafjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. og 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, á þann veg : 30% skal skipt jafnt á þá báta sem landað hafa sínum afla fiskveiðiárið 2017/2018 í Tálknafirði og uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar. 70% skal skipt hlutfalls­lega, miðað við allan landaðan botnfiskafla til vinnslu í Vestur-Barða­strandar­sýslu í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tíma­bilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta í Tálknafjarðarhöfn til vinnslu innan byggðar­­laga í Vestur-Barðastrandarsýslu, á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Sveitarfélagið Skagafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Sauðárkróks og Hofsóss með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan viðkom­andi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018, þó að hámarki 7 þorskígildistonn á báta yfir 50 brúttótonn að stærð.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2018 til 31. ágúst 2019.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. febrúar 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 8. febrúar 2019