Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1303/2021

Nr. 1303/2021 5. nóvember 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr., í réttri númeraröð:

  1.16 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/353 frá 25. febrúar 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.16.
  1.17 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/908 frá 4. júní 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins Belarús, sbr. fylgiskjal 1.17.
  1.18 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1001 frá 21. júní 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins Belarús, sbr. fylgiskjal 1.18.
  1.19 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1002 frá 21. júní 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins Belarús, sbr. fylgiskjal 1.19.
  1.20 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/1031 frá 24. júní 2021 um breytingu á ákvörðun 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins Belarús, sbr. fylgiskjal 1.20.
  2.22 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/339 frá 25. febrúar 2021 um framkvæmd 8. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.22.
  2.23 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/907 frá 4. júní 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.23.
  2.24 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/996 frá 21. júní 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.24.
  2.25 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/997 frá 21. júní 2021 um framkvæmd 8. gr. a(1) reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.25.
  2.26 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/999 frá 21. júní 2021 um framkvæmd 8. gr. a(1) reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.26.
  2.27 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/1030 frá 24. júní 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir með tilliti til Belarús, sbr. fylgiskjal 2.27.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 5. nóvember 2021.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 22. nóvember 2021