Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 888/2019

Nr. 888/2019 27. september 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 845/2014, um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.

1. gr.

2. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Þrátt fyrir að heildarvirði samninga sem greinir í 1. mgr. sé yfir viðmiðunarfjárhæðum er heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samn­ings­hluta ef áætlað verðmæti viðkomandi samningshluta, án virðisaukaskatts, er lægra en 10.408.000 kr. vegna vöru eða þjónustu og 130.100.000 kr. vegna verks.

2. gr.

Reglugerðin er sett með heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 27. september 2019.

 F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Hrafn Hlynsson.


B deild - Útgáfud.: 11. október 2019