Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 16/2023

Nr. 16/2023 19. janúar 2023

GJALDSKRÁ
Hitaveitu Dalvíkur.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir orkuveitusvæði Hitaveitu Dalvíkur. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts og orkuskatts.

 

2. gr.

Viðmiðunarhitastig gjaldskrár er 25°C.

Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:

a) Orkugjald skv. orkumæli kr. 3,05 pr. kWst.
b) Orkugjald skv. orkumæli sundlauga kr. 1,525 pr. kWst.
c) Lokunargjald kr. 8.704  

Þeim viðskiptavinum Hitaveitu Dalvíkur sem nota meira 10.006.000 kWst. á ári er veittur 30% afsláttur af gjaldskrá.

 

3. gr.

Viðskiptavinir skulu greiða fast gjald í formi mælaleigu, gjaldið er daggjald og er breytilegt eftir stærð mæla. Mælaleigan er sem hér segir:

Stærð mælis Mælagjald í kr. á dag
  15 mm   41,66
  20 mm   55,82
  25 mm   83,13
  40 mm 104,33
  50 mm 130,60
  65 mm 147,09
  80 mm 166,02
100 mm 187,36

 

4. gr.

Heimæðagjald Hitaveitu Dalvíkur skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:

Fyrir hús allt að 400 m³ að utanmáli og heimæð allt að 50 m kr. 417.697
og á hvern m³ þar yfir kr.       525
og á hvern m fram yfir 50 m kr.    9.141

Rúmmál húsa miðast við stærðir samkvæmt reglum um skráningu fasteigna hjá Þjóðskrá Íslands. Heimæðagjöld skal reikna af öllu húsrými á viðkomandi lóð, hvort sem það verður tengt hita­veitunni eða ekki.

Heimæðagjald hitaveitu fyrir útihús tengd landbúnaði skal vera með eftirfarandi hætti:

a. Fyrir mjólkurhús/fjós skal greiða lágmarksgjald kr. 417.697
b. Fyrir hesthús að 700 m³ skal greiða lágmarksgjald. Aðilum er heimilt að sameinast um inntak.    

Ef um er að ræða lagnir í dreifða byggð eða samkvæmt sérsamningi er vísað til 17. gr. reglu­gerðar fyrir Hitaveitu Dalvíkur. Gjald þetta skal þó aldrei vera lægra en nemur lágmarks heimæða­gjaldi hitaveitunnar.

 

5. gr.

Heimæðagjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í sept­ember 2022, 173,0 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.

 

6. gr.

Hitaveitan hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð viðskiptamanns sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Fyrirætlun um að loka, ber að tilkynna með 10 daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni kr. 8.704.

 

7. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, er hér með staðfest sam­kvæmt orkulögum nr. 58/1967, til að taka gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1614/2021.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. janúar 2023.

 

F. h. r.

Sigríður Svana Helgadóttir.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 23. janúar 2023