Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1386/2020

Nr. 1386/2020 11. desember 2020

GJALDSKRÁ
fyrir hunda- og kattahald í Múlaþingi.

1. gr.

Hunda- og kattaeigendur sem búsettir eru í Múlaþingi, skulu greiða leyfisgjöld, sbr. 11. gr. í samþykkt um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heil­brigðisnefndar Austurlandssvæðis nr. 912/2015 og 12. gr. í samþykkt um hundahald í sex sveitar­félögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis nr. 933/2015.

 

2. gr.

Af hundum skal innheimta leyfisgjald sbr. 12. gr. samþykktar nr. 933/2015, að upphæð kr. 14.000 á hvern hund. Gjald greiðist á gjalddaga 1. febrúar en eindagi er 28. febrúar ár hvert. Innifalið í leyfisgjaldi er ormahreinsun og trygging auk umsýslugjalda sveitafélagsins.

Af köttum skal innheimta leyfisgjald, sbr. 11. gr. samþykktar nr. 912/2015, að upphæð kr. 9.500 á hvern kött. Gjald greiðist á gjalddaga 1. febrúar en eindagi er 28. febrúar ár hvert. Innifalið í leyfisgjaldi er ormahreinsun og trygging auk umsýslugjalda sveitafélagsins.

Um vexti af vangreiddum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari gilda almennar reglur. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

 

3. gr.

Eigendur hunda og katta eru ábyrgir fyrir öllum kostnaði sem hlýst af brotum gegn samþykkt nr. 933/2015 og samþykkt nr. 912/2015.

Við afskráningu hunds eða kattar ber að endurgreiða árlegt leyfisgjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.

 

4. gr.

Handsömunargjald skv. 12. gr. samþykktar nr. 933/2015 er sem hér segir:

  A) Grunngjald, sem greiðist við hverja föngun er kr. 15.000.
  B) Gistigjald, sem greitt er fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem hundur er í vörslu er kr. 6.000.
  C) Álag sem bætist ofan á grunngjald og gistigjald, ef hundur er fangaður utan dagvinnutíma, er kr. 15.000.
  D) Stórhátíðaálag sem bætist ofan á grunngjald, gistigjald og álag skv. C), ef hundur er fang­aður á stórhátíðardögum, er kr. 15.000.

Ef til aflífunar hunds kemur, skal eigandi dýrs að auki greiða útlagðan aflífunarkostnað. Ef hundur var ekki ormahreinsaður í síðustu skipu­lögðu ormahreinsun fyrir handsömun, eða síðar af dýralækni, skal láta ormahreinsa hundinn áður en hann er afhentur eiganda og skal eigandi greiða útlagðan kostnað vegna hreins­unarinnar.

 

5. gr.

Handsömunargjald, skv. 11. gr. samþykktar nr. 912/2015 er sem hér segir:

  A) Grunngjald, sem greiðist við hverja föngun er kr. 15.000.
  B) Gistigjald, sem greitt er fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem köttur er í vörslu er kr. 6.000.
  C) Álag sem bætist ofan á grunngjald og gistigjald, ef köttur er fangaður utan dagvinnutíma, er kr. 15.000.
  D) Stórhátíðaálag sem bætist ofan á grunngjald, gistigjald og álag skv. C) ef köttur er fangaður á stórhátíðardögum, er kr. 15.000.

Ef til aflífunar kattar kemur, skal eigandi dýrs að auki greiða útlagðan aflífunarkostnað. Ef köttur var ekki ormahreinsaður í síðustu skipulögðu ormahreinsun fyrir handsömun, eða síðar af dýralækni, skal láta ormahreinsa köttinn áður en hann er afhentur eiganda og skal eigandi greiða útlagðan kostnað vegna hreinsunarinnar.

 

6. gr.

Ofangreind gjaldskrá er sett með vísun til heimilda í samþykkt um hundahald í sex sveitar­félögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis nr. 933/2015, samþykkt um kattahald og gæludýrahald annarra en hunda í sex sveitarfélögum á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austur­lands­svæðis nr. 912/2015 og 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi.

Við staðfestingu gjaldskrár þessarar falla úr gildi: gjaldskrá vegna hunda- og kattahalds í Borgar­fjarðarhreppi nr. 252/2013, gjaldskrá fyrir leyfisgjaldi vegna hunda- og kattahalds, ásamt gjaldi vegna föngunar og vörslu óskilahunda og óskilakatta í Djúpavogshreppi nr. 1145/2008, gjald­skrá fyrir hunda- og kattahald á Fljótsdalshéraði nr. 330/2016 og gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Seyðisfjarðarkaupstað nr. 417/2020.

Gjaldskráin var samþykkt af sveitarstjórn Múlaþings þann 9. desember 2020.

 

Egilsstöðum, 11. desember 2020.

 

Björn Ingimarsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2020