Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 960/2021

Nr. 960/2021 25. ágúst 2021

AUGLÝSING
um mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021.

Landskjörstjórn gerir kunnugt: að með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, sbr. og 5.-6. tölul. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, skuli mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður fyrir alþingiskosningar 25. september 2021 vera eftirfarandi:

Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi að Víkurvegi. Þaðan skulu mörkin dregin eftir Víkurvegi til austurs að Reynis­vatns­vegi, í austur að Jónsgeisla og eftir Jónsgeisla að Krosstorgi (ISN93 hnit: 366173, 405513). Frá Krosstorgi eru mörkin dregin austur um miðlínu Gvendargeisla og Biskupsgötu að Reynisvatnsvegi. Frá gatnamótum Biskupsgötu og Reynisvatnsvegar eru mörkin dregin eftir miðlínu Hólmsheiðar­vegar allt til móts við Haukdælabraut 66 (ISN93 hnit: 367088, 405485) og þaðan skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93: hnit 369097, 405485).

Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir mörk milli Reykjavíkurkjördæma með rauðri línu, fylgi­skjal 1 og uppdráttur sem sýnir mörk Reykjavíkurkjördæma í Grafarholti með rauðri línu, fylgiskjal 2.

Þá hefur landskjörstjórn ákveðið með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, að þeim sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík skv. b-lið 1. mgr. 23. gr. sömu laga skuli skipt milli Reykjavíkurkjördæma suður og norður þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður komi allir þeir sem eru fæddir 1.-15. dag mánaðar en í Reykjavíkurkjördæmi norður komi allir þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar eða síðar. Sama regla gildir um þá sem skráðir eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.

 

Landskjörstjórn, 25. ágúst 2021.

 

Kristín Edwald formaður.

  Páll Halldórsson.  Anna Tryggvadóttir.
     
  Heiða Björg Pálmadóttir.  Ólafía Ingólfsdóttir.

Laufey Helga Guðmundsdóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 27. ágúst 2021