Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 230/2021

Nr. 230/2021 15. febrúar 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.

1. gr.

3. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki og önnur félagaform sem eru með ótak­mark­aðri ábyrgð sveitarfélags, skulu færð inn í samantekin reikningsskil sveitarfélags miðað við hlutfalls­lega ábyrgð sveitarfélags, þ.e. sveitarfélag skal færa hlutdeild þess í einstökum liðum rekstrar og efnahags, óháð stærð eignarhluta.

 

2. gr.

Í stað fylgiskjala I-IV með reglugerð nr. 1212/2015 koma ný fylgiskjöl I-IV sem birt eru með reglugerð þessari.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 75. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir reikningsár sem hefst 1. janúar 2021 eða síðar.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 15. febrúar 2021.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 1. mars 2021