Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1168/2023

Nr. 1168/2023 23. október 2023

REGLUGERÐ
um (21.) breytingu á reglugerð nr. 397/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 um nákvæmar skilgreiningar á aukefnum í matvælum sem tilgreind eru í II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1023 frá 28. júní 2022 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar notkun á hafra­lesitíni í kakó- og súkkulaðivörur sem falla undir tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/36/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2023, frá 13. júní 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 7. september 2023, bls. 70.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1037 frá 29. júní 2022 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 og viðaukanum við reglu­gerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 231/2012 að því er varðar notkun á glýkólípíðum sem rotvarnarefni í drykkjarvörur. Reglugerðin var felld inn í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2023, frá 13. júní 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 7. september 2023, bls. 74.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 23. október 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 8. nóvember 2023