Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1508/2023

Nr. 1508/2023 4. desember 2023

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 232/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um skráningar á landfræðilegum merkingum fyrir brennda drykki skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast við tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/888 frá 31. maí 2022 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Hohenloher Birnenbrand/Hohenloher Birnen­wasser“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 95/2023, frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 40, frá 25. maí 2023, bls. 283.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/452 frá 24. febrúar 2023 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Grappa della Valle d’Aosta/Grappa de la Vallée d’Aoste“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 274/2023, frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, frá 16. nóvember 2023, bls. 489.

 

2. gr.

Tollyfirvöld hafa eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 132. gr. tollalaga nr. 88/2005.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftir­lit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, sbr. 29. gr. laga nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, land­svæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til upp­runa, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014, og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995 og öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 4. desember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023