Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 31/2019

Nr. 31/2019 23. janúar 2019

AUGLÝSING
(I) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Sveitarfélagið Árborg.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Eyrarbakka og Stokkseyrar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitar­félögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlut­falls­lega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botn­fiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tíma­bilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  b) 2. mgr. 4. gr. fellur brott.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa, þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Suðurnesjabær.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Sandgerðis og Garðs með eftir­farandi viðauka/breytingum:

Sandgerði.

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 40% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa þó ekki meira í þorsk­ígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum í Sandgerði á fisk­veiði­árinu 2017/2018 og 60% skipt hlutfallslega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til Sandgerðis, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Sandgerði í tegundum sem hafa þorsk­ígildisstuðla, í þorskígildum talið, á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Sandgerðis og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Garður.

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 40% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa þó ekki meira í þorsk­ígildum talið en viðkomandi bátur landaði í þorskígildum á fiskveiðiárinu 2017/2018 og 60% skipt hlutfalls­lega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til Garðs, miðað við allan landaðan botnfiskafla í Garði í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið, á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Garðs og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Sveitarfélagið Skagaströnd.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitarfélagsins Skagastrandar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal 45 þorskígildistonnum úthlutaðs byggðakvóta skipt jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar eftir breytingu og áttu hlutdeild í Húna­flóa­rækju 1. september 2016 og 255 þorskígildistonnum, auk þess aflamarks sem eftir er af úthlutun fyrra fiskveiði­árs sem verði skipt hlutfallslega, miðað við allan landaðan botn­fisk­afla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan við­komandi byggðar­lags á tímabilinu 1. sept­ember 2017 til 31. ágúst 2018. Hámarks­úthlutun verður 50 þorsk­ígildis­­tonn á skip. Hámarkið gildir um samanlagða úthlutun úr báðum flokkum, þó skal við úthlutun fyrst reikna að fullu byggðakvóta sem úthlutað er vegna innfjarðar­rækju­veiða (Húnaflóarækja).
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2018 til 31. ágúst 2019.

Norðurþing.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Raufarhafnar og Kópaskers með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan sveitar­félagsins á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.
  b) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Langanesbyggð.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Bakkafjarðar og Þórshafnar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Í d-lið 1. gr. reglugerðarinnar bætist við: Einungis skip sem eru minni en 300 brúttótonn fá úthlutun.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.

Sveitarfélagið Hornafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Sveitarfélagsins Hornafjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til ein­stakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til við­komandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan sveitar­félagsins á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018.

Snæfellsbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Hellissands, Rifs, Arnarstapa og Ólafsvíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Í 1. gr., c-lið, breytist „í viðkomandi byggðarlagi“ og verður: í viðkomandi sveitarfélagi.
  b) Í 4. gr., 1. mgr. (6. lína), breytist „í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags“ og verður: í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags.
  c) Í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „innan hlutaðeigandi byggðarlags“ og verður: innan hlutaðeigandi sveitarfélags.

Blönduósbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 685/2018 gilda um úthlutun byggðakvóta Blönduóss með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipta 75% úthlutaðs byggðakvóta jafnt milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglu­gerðarinnar, og 25% skal skipt í hlutfalli við hlutdeild í Húnaflóa­rækju miðað við hlut­deild skipanna 1. september 2018.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019 í Blönduós­höfn eða Skagastrandarhöfn.
  c) Ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru skráð í viðkomandi sveitar­félagi 11. júlí 2018.
  d) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu ein­­stak­linga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 11. júlí 2018.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. janúar 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 23. janúar 2019