Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 612/2023

Nr. 612/2023 5. júní 2023

REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1012/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 152/2009 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna opinbers eftirlits með fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2023, frá 17. mars 2023, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/893 frá 7. júní 2022 um breyt­ingu á VI. viðauka við reglugerð (EB) nr. 152/2009 að því er varðar greiningaraðferðir til að greina innihaldsefni úr landhryggleysingjum vegna opinbers eftirlits með fóðri. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30, frá 20. apríl 2023, bls. 147.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 5. júní 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. júní 2023