Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1502/2021

Nr. 1502/2021 21. desember 2021

REGLUR
ríkisskattstjóra um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2022.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2022 eru settar skv. 118. gr. nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2022.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2022 er sem hér segir:

 

Tegund

Krónur

Eining
Mjólk 104   pr. lítra
Egg 516 pr. kg
Kartöflur 103 pr. kg
Rófur 168 pr. kg
Gulrætur 342 pr. kg
Lambakjöt 471 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 165 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 114 pr. kg
Ungnautakjöt 608 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 405 pr. kg
Folaldakjöt 317 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 123 pr. kg
Grísakjöt 451 pr. kg
Annað svínakjöt 224 pr. kg
Kjúklingar 405 pr. kg
Annað fuglakjöt 664 pr. kg
Lax og silungur 747 pr. kg
Annar fiskur 345 pr. kg

 

Reykjavík, 21. desember 2021.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2021