Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1462/2022

Nr. 1462/2022 7. desember 2022

REGLUGERÐ
um (17.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast átta nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2191 frá 10. desember 2021 um leyfi til að setja á markað ferskar plöntur af tegundinni Wolffia arrhiza og/eða Wolffia globosa sem hefðbundin matvæli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 237/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 174.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/47 frá 13. janúar 2022 um leyfi til að setja á markað þurrkað aldinkjöt kirsuberja af tegundinni Coffea arabica L og/eða Coffea canephora Pierre ex A.Froehner og seyði úr þeim sem hefðbundin matvæli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 237/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 179.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/168 frá 8. febrúar 2022 um leyfi til að setja á markað gerilsneyddar Akkermansia muciniphila sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdar­reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 185.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/169 frá 8. febrúar 2022 um leyfi til að setja á markað fryst og þurrkað form og duftform mjölbjalla (lirfur Tenebrio molitor) sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 190.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/187 frá 10. febrúar 2022 um leyfi til að setja á markað setýlaðar fitusýrur sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð fram­kvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2022, frá 23. september 2022. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 197.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/188 frá 10. febrúar 2022 um leyfi til að setja á markað fryst og þurrkað form og duftform húskrybba (Acheta domesticus) sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 203.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/196 frá 11. febrúar 2022 um leyfi fyrir rýmkun á notkun og breytingum á nákvæmum skilgreiningum á nýfæðinu brauð­geri, sem hefur verið meðhöndlað með útfjólubláu ljósi (Saccharomyces cerevisiae), sam­kvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á fram­kvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 210.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/202 frá 14. febrúar 2022 um leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sam­bands­ins yfir nýfæði. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 216.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 7. desember 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 22. desember 2022