Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1357/2023

Nr. 1357/2023 5. október 2023

GJALDSKRÁ
fyrir hunda- og kattahald í Ísafjarðarbæ.

1. gr.

Af hundum og köttum í Ísafjarðarbæ skal Ísafjarðarbær innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd 9. gr. samþykktar um kattahald í Ísafjarðarbæ nr. 907/2013 og 10. gr. samþykktar um hundahald í Ísafjarðarbæ nr. 906/2013.

 

2. gr.

Við umsókn um skráningu kattar skal innheimta gjald sem hér segir:

  Fyrsta leyfisveiting kr. 5.000

 

3. gr.

Við umsókn um skráningu hunds skal innheimta gjald sem hér segir og er það jafnframt árgjald það árið:

  Fyrsta leyfisveiting kr. 3.000
  Hlutfallslegt eftirlitsgjald við leyfisveitingu kr. 1.000 á mánuði

 

4. gr.

Af leyfðum hundum skal innheimta árlega eftirlitsgjald sem hér segir:

  Einn hundur  kr. 12.000

Ekki skal innheimta eftirlitsgjald sama ár og dýr er skráð.

 

5. gr.

Fyrir hverja handsömun skráðs kattar, sem er á flækingi og veldur ónæði, skal eigandi hans greiða kr. 6.300 til að fá köttinn afhentan aftur.

Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

Ef eigandi gefur sig ekki fram innan sjö sólarhringa og greiðir handsömunargjaldið og annan áfallinn kostnað er heimilt að aflífa köttinn að undangenginni auglýsingu, sbr. 12. gr. í samþykkt um kattahald í Ísafjarðarbæ nr. 907/2013.

Við afhendingu handsamaðs hunds skal innheimta handsömunargjald sem hér segir:

  Fyrsta afhending hunds kr. 18.900
  Önnur afhending hunds kr. 37.700
  Þriðja afhending hunds kr. 56.500
  Fyrsta afhending hunds án leyfis kr. 37.700

Óheimilt er að afhenda hunda án leyfis nema gengið verði frá leyfisveitingu við afhendingu. Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna fæðis, geymslu, auglýsinga og ferðakostnaðar hand­samaðs hunds.

 

6. gr.

Innifalið í leyfisgjaldi katta er heilbrigðisskoðun dýralæknis, ormahreinsun og trygging auk umsýslu­gjalda sveitarfélagsins.

Innifalið í leyfisgjaldi hunda er greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu, heilbrigðisskoðun dýralæknis og árleg ormahreinsun.

 

7. gr.

Gjalddagi samkvæmt 3. og 4. gr. er 1. mars og eindagi 1. apríl ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

 

8. gr.

Hafi leyfishafi lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af Ísafjarðarbæ lækka gjöldin skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar um 30%.

Skilyrði fyrir því að leitarhundur sé undanþeginn leyfisgjaldi er að viðkomandi hundur hafi að minnsta kosti B viðurkenningu útgefna af viðurkenndum leiðbeinanda og skal ljósrit af viðurkenn­ingu afhendast við umsókn um niðurfellingu leyfisgjalda. Heimilt er að ógilda niðurfellingu leyfis­gjalda sé viðkomandi hundur ekki lengur á skrá sem leitarhundur samkvæmt skilgreiningu þessari.

 

9. gr.

Gjaldskrá þessi sem er samin og samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, er sett samkvæmt heimild í 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, samanber samþykkt um katta­hald í Ísafjarðarbæ, nr. 907/2013 og samþykkt um hundahald í Ísafjarðarbæ nr. 906/2013 til að öðlast gildi þann 1. janúar 2024.

Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Ísafjarðarbæ nr. 1343/2022.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 5. október 2023.

 

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 12. desember 2023