Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt deiliskipulagsbreytingar sem hér segir:
Þingvallavegur – Jónstótt. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að stækka skipulagsmörk Þingvallavegar til suðurs innan lands L215451. Innan skipulagsins eru teiknuð 20 almenn bílastæði gesta og 3 rútustæði fyrir framan Jónstótt. Við bætast göngustígar, áningarstaður og hjólastæði, ásamt handriði á brú yfir Köldukvísl. Um er að ræða nýja aðkomu að safninu að Gljúfrasteini. Gildandi skipulag var staðfest 27. mars 2019. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
Reykjabyggð – Bjarg. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér tilfærslu á byggingreit innan lóðar Bjargs, L123616. Reiturinn stækkar til norðurs um 0,8 metra. Gildandi skipulag var staðfest 12. október 2017. Aðrir skilmálar eru óbreyttir.
Vestan Tangahverfis – Bjartahlíð 25. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér stækkun lóðar að Björtuhlíð 25. Lóðin stækkar til austurs í átt að göngustíg. Gildandi uppdráttur/skipulag var staðfest 28. apríl 1993. Annað í skipulagi er óbreytt.
Ofangreindar deiliskipulagsbreytingar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 13. nóvember 2020,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|