Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 123/2016

Nr. 123/2016 28. janúar 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.

Innleiðing.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður svohljóðandi:

  1. Reglugerð (ESB) 2015/1039 frá 30. júní 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar flugprófanir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 277 frá 30. október 2015. Reglugerðin er birt á bls. 534 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 74 frá 10. desember 2015.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 28. janúar 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.


B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2016