Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 439/2013

Nr. 439/2013 6. maí 2013

AUGLÝSING
frá landskjörstjórn um fjölda kjördæmissæta í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Landskjörstjórn gerir kunnugt:

að í ljósi fjölda kjósenda á kjörskrá að baki hverju þing­sæti við nýafstaðnar alþingiskosningar 27. apríl 2013 skuli við næstu almennu alþingis­kosningar vera átta þingsæti í Norðvesturkjördæmi, sjö kjördæmissæti og eitt jöfnunar­sæti, en þrettán þingsæti í Suðvesturkjördæmi, ellefu kjördæmissæti og tvö jöfnunar­sæti, sbr. 5. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, og 9. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000.

Reykjavík, 6. maí 2013.

Freyr Ófeigsson.

 

Sigrún Benediktsdóttir.

Ástráður Haraldsson.

 

Björn Jósef Arnviðarson.

Jakob Björnsson.

Þórhallur Vilhjálmsson.


B deild - Útgáfud.: 8. maí 2013