Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1062/2021

Nr. 1062/2021 22. september 2021

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 540/2020 um fiskeldi.

1. gr.

Ákvæði 49. gr. reglugerðarinnar breytist og orðast svo:

Innra eftirlit sjókvíaeldisstöðvar skal m.a. fela í sér vöktun á viðkomu sníkjudýra í eldinu í sam­ræmi við leiðbeiningar sem fram koma í viðauka VI og skulu rekstrarleyfishafar sjókvíaeldis­stöðvar starfa eftir viðbragðsáætlun sem samþykkt er af Matvælastofnun. Viðbragðsáætlun skal fela í sér aðgerðir vegna viðkomu snýkjudýra í eldinu. Niðurstöður vöktunar skulu sendar Matvælastofnun og birtar opinberlega í samræmi við 56. gr.

Viðbragðsáætlun skal auk þeirra atriða sem tiltekin eru í viðauka VI fela í sér aðgerðir fari meðaltals­fjöldi kynþroska kvenlúsa (með eða án eggjastrengja) innan viðkomandi svæðis umfram 0,5, 1, 1,5 og 2 á hvern fisk. Viðbragðsáætlun rekstrarleyfishafa skal virkjuð þegar meðaltalsfjöldi kyn­­þroska kvenlúsa innan viðkomandi svæðis fer umfram 0,5 á hvern fisk og skal Matvælastofunun til­kynnt um það. Þegar tilkynning um virkjun viðbragðsáætlunar berst Matvælastofnun skal stofn­unin meta hvort ráðstafanir rekstrarleyfishafa samkvæmt viðbragðsáætlun nái þeim árangri sem að sé stefnt eða hvort annarra aðgerða en tilgreindar eru í viðbragðsáætlun sé þörf. Rekstraraðili skal einnig tilkynna Matvælastofnun þegar meðaltalsfjöldi kvenlúsa innan viðkomandi svæðis fer umfram 1, 1,5 og 2 á hvern fisk og þá skal Matvælastofnun meta hvort annarra aðgerða en til­greindar eru í viðbragðs­áætlun sé þörf. Matvælastofnun skal leita umsagnar Hafrannsókna­stofn­unar áður en ákvörðun um aðgerðir er tekin.

 

2. gr.

Fyrirsögn viðauka VI orðast svo: Leiðbeiningar um vöktun á viðkomu sníkjudýra í sjókvía­eldi og viðbragðsáætlun vegna viðkomu sníkjudýra.

 

3. gr.

Í upphafi viðauka VI kemur ný málsgrein ásamt fyrirsögn sem orðast svo:

Viðbragðsáætlun vegna viðkomu sníkjudýra.

Rekstrarleyfishafi skal starfa eftir viðbragðsáætlun vegna viðkomu sníkjudýra í sjókvíaeldi. Viðbragðs­áætlunin skal fela í sér fyrirbyggjandi eða annars konar aðgerðir sem stuðla að heilbrigði og velferð lagardýra ásamt því að hindra útbreiðslu og útrýma smitsjúkdómum í lagardýrum og minnka smitálag á umhverfi.

Í viðbragðsáætlun skal skilgreina eftirfarandi og viðbrögð rekstrarleyfishafa:

  1. Fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir álag vegna sníkjudýra s.s. með búnaði eða með hreinsifiski.
  2. Tímabil, tíðni og umfang talningar fyrir hvert svæði.
  3. Skilgreind mörk á lágmarksfjölda sníkjudýra, eftir árstíma, staðháttum og stærð fisks sem fela í sér þörf á aðgerðum.
  4. Áætlun um viðbrögð við lágmarksfjölda sníkjudýra eftir tegund, þroska og áhrifum á eldis­fisk. Í áætlun skulu tilgreind einstök skref sem taka mið af mismunandi ástandi.
  5. Í áætlun skal tilgreina hvenær rekstrarleyfishafi muni upplýsa Matvælastofnun um viðbrögð, hvenær ósk um meðhöndlun skuli lögð fram og hvað felist í ósk um meðhöndlun þ.m.t. böðun, lyfjablöndun fóðurs eða önnur lyfjagjöf.
  6. Jafnframt skal í áætlun tilgreint hvenær slátrun er valkostur í viðbragðsáætlun.
  7. Í áætlun skal einnig tilgreina skref um samræmd viðbrögð ótengdra rekstrarleyfishafa á eldissvæðum ef þörf er á.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 71/2008, um fiskeldi, með síðari breyt­ingum og öðlast gildi þann 1. nóvember 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. september 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 23. september 2021