Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 836/2017

Nr. 836/2017 28. september 2017

AUGLÝSING
um mörk kjördæma í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar 28. október 2017.

Landskjörstjórn gerir kunnugt: að með vísan til 1. mgr. 7. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, sbr. og 5.-6. tölul. 1. mgr. 6. gr. sömu laga, skuli mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður fyrir alþingiskosningar 28. október 2017 vera eftirfarandi:

Mörk Reykjavíkurkjördæma suður og norður skulu dregin um miðlínu eftirfarandi gatna frá vestri til austurs: Eftir Hringbraut (frá Ánanaustum), gömlu Hringbraut, Miklubraut, Ártúnsbrekku og Vestur­lands­vegi, en frá Vesturlandsvegi á móts við Sóltorg (ISN93 hnit: 364886, 405744) skal dregin bein lína í miðpunkt Sóltorgs og þaðan skulu mörkin dregin eftir miðlínu Kristnibrautar, Gvendar­geisla og Biskupsgötu að Reynis­vatns­vegi. Frá gatnamótum Biskups­götu og Reynisvatnsvegar eru mörkin dregin eftir miðlínu Hólmsheiðarvegar allt til móts við Haukdælabraut 66 (ISN93 hnit: 367088, 405485) og þaðan skal dregin bein lína að borgarmörkum (ISN93 hnit 369097, 405485).

Meðfylgjandi er uppdráttur sem sýnir mörk milli Reykjavíkurkjördæma með rauðri línu, fylgiskjal 1 og uppdráttur sem sýnir mörk Reykjavíkurkjördæma í Grafarholti með rauðri línu, fylgiskjal 2.

Þá hefur landskjörstjórn ákveðið með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, að þeim sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík skv. b-lið 1. mgr. 23. gr. sömu laga skuli skipt milli Reykjavíkurkjördæma suður og norður þannig að í Reykjavíkurkjördæmi suður komi allir þeir sem eru fæddir 1.-15. dag mánaðar en í Reykjavíkurkjördæmi norður komi allir þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar eða síðar. Sama regla gildir um þá sem skráðir eru óstaðsettir í hús í Reykjavík.

Reykjavík, 28. september 2017.

Landskjörstjórn,

Kristín Edwald formaður.

  Ástráður Haraldsson. Dagný Rut Haraldsdóttir.
     
  Tinna Isebarn. Ásdís J. Rafnar.

Guðný Vala Dýradóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 29. september 2017