Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1305/2022

Nr. 1305/2022 11. nóvember 2022

GJALDSKRÁ
fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg svo sem nánar greinir í gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
A.1 120 l spartunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 25.200
A.2 120 l spartunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 32.400
A.3 240 l grá tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 40.700
A.4 240 l grá tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 50.700
A.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 111.925
A.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 139.425
     
    kr./losun
A.7 3 m³ gámur 22.800
A.8 4 m³ gámur 28.400
A.9 5 m³ gámur 33.900

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
B.1 240 l blá tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 11.900
B.2 240 l blá tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 18.600
B.3 660 l blátt ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 32.725
B.4 660 l blátt ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 51.150
     
    kr./losun
B.5 3 m³ gámur 7.200
B.6 4 m³ gámur 7.600
B.7 5 m³ gámur 7.900

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
C.1 240 l græn tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 12.000
C.2 240 l græn tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 18.700
C.3 660 l grænt ker, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 33.000
C.4 660 l grænt ker, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 21 dags fresti 51.425
     
    kr./losun
C.5 3 m³ gámur 6.600
C.6 4 m³ gámur 6.700
C.7 5 m³ gámur 6.800

 

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, lífúrgangur:

Gjald­flokkur nr. Tegund íláts og hirða Gjald kr./ílát á ári
D.1 120 l brún tunna, sótt minna en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 15.500
D.2 120 l brún tunna, sótt meira en 15 metra frá hirðubíl á 14 daga fresti 22.700
     
    kr./losun
D.3 3 m³ gámur 17.400

Gjaldi fyrir tunnur og ker er ætlað að standa undir kostnaði við ílát, hirðu og förgun eða endur­vinnslu úrgangs. Gjaldi fyrir gáma er ætlað að standa undir kostnaði við hirðu og förgun eða endur­vinnslu.

 

Aðrir gjaldaliðir.

Merktir pokar fyrir tilfallandi umfram blandaðan úrgang: 1.525 kr./stk. Gjald fyrir aukalosun: 5.600 kr./ferð auk 1.960 kr./ílát sem losað er.

Gjald fyrir aukalosun djúpgáma: 5.600 kr./ferð auk losunargjalds djúpgáma hér að framan. Gjald vegna reksturs grenndar- og endurvinnslustöðva: 17.500 kr./íbúð. Gjaldi vegna grenndar- og endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri grenndar- og endurvinnslustöðva SORPU bs.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, akstur og skráning íláta, er 3.670 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

 

3. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

 

4. gr.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda samkvæmt þessari gjaldskrá.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af borgarráði Reykjavíkurborgar með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Reykjavíkurborg nr. 1552/2021.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 11. nóvember 2022.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2022