Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1243/2023

Nr. 1243/2023 14. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (51.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1435 frá 26. ágúst 2022 um breytingu á II. og IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir kalsíumkarbónat, koltvísýring, sýpródiníl og kalíumbíkarbónat í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 203/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 205.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/334 frá 2. febrúar 2023 um breytingu á II. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir klóþíanidín og þíametoxam í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 205/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 235.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/198 frá 30. janúar 2023 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir abamektín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 204/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 220.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/710 frá 30. mars 2023 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir brómóprópýlat, klórídasón, fenprópímorf, ímasakín og tralkoxýdím í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2023, frá 22. september 2023. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 535.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/679 frá 23. mars 2023 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir pýridaben, pýridat, pýriproxýfen og tríklópýr í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 500.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 23. nóvember 2023