Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1159/2017

Nr. 1159/2017 7. desember 2017

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2018.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2017, álagningarárið 2018, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

  kr.    
Mjólkurkýr 118.000
Holdakýr og naut 140.000
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri 110.000
Geldneyti 76.000
Kálfar, yngri en 1/2 árs 12.000
Ær og sauðir 5.800
Hrútar 12.100
Gemlingar 8.000
Geitur 6.500
Hross á 14. vetri og eldri 18.000
Hross á 5. – 13. vetri 36.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 170.000
Önnur nýtanleg reiðhross 90.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 250.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 350.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 450.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 12.300
Folöld 8.700
Hænsni, eldri en 6 mánaða 925
Varphænsni 6 mánaða og yngri 625
Kjúklingar 235
Endur 820
Gæsir 1.640
Kalkúnar 2.460
Gyltur 37.000
Geltir 55.000
Grísir 8.850
Kanínur 5.000
Minkar: Karldýr 7.500
  Kvendýr 5.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

Reykjavík, 7. desember 2017.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2017