1. gr.
Við upptalningu kennslugreina í 1. mgr. 94. gr. reglna nr. 569/2009, á eftir málsliðnum „Til MS-prófs í stjórnun og stefnumótun“, bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Til MS-prófs í verkefnastjórnun.
2. gr.
Í 2. málslið b-liðar 1. mgr. 109. gr., á undan orðinu „nytjaþýðingum“, bætist við orðið: annarsmálsfræðum.
3. gr.
Í 2. málslið b-liðar 1. mgr. 113. gr., á undan orðinu „nytjaþýðingum“, bætist við orðið: annarsmálsfræðum.
4. gr.
1. mgr. 126. gr. orðast svo:
Jarðvísindadeild veitir kennslu og þjálfun sem hér segir:
- Til BS-prófs í jarðeðlisfræði og jarðfræði.
- Til meistaraprófs, MS-prófs, í jarðeðlisfræði, jarðfræði og jarðvísindum.
- Til doktorsprófs, Ph.D.-prófs, í jarðeðlisfræði, jarðfræði og jarðvísindum.
- Enn fremur veitir deildin kennslu til meistaraprófs í umhverfis- og auðlindafræði og öðrum þverfræðilegum greinum í samvinnu við aðrar háskóladeildir, þar sem nauðsynleg aðstaða er fyrir hendi.
5. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli 7. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 23. nóvember 2015.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
|