Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1256/2022

Nr. 1256/2022 4. nóvember 2022

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 995/2017 um doktorsnám við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

2. mgr. 9. gr. reglnanna fellur brott.

 

2. gr.

Á undan 1. mgr. 10. gr. reglnanna bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:

Doktorsnefndin getur sett fram námskeiðskröfur sem hún telur nauðsynlegar fyrir rannsóknar­verkefnið. Doktorsnefndin gerir tillögu að umfangi og innihaldi námskeiðanna, sem þurfa samþykki framhaldsnámsnefndar.

 

3. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 4. nóvember 2022.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2022