Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 265/2024

Nr. 265/2024 28. febrúar 2024

AUGLÝSING
um (2.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 852/2023, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélögum:

 

Langanesbyggð (breyting á almennum skilyrðum, breyting á viðmiðun um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Bakkafjarðar og Þórshafnar með eftirfarandi breytingum:

  a) Við 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Skráð stærð fiskiskips er minni en 300 brúttótonn.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023 að frádregnu því aflamarki sem tilkomið er vegna úthlutunar á sértæku aflamarki Byggðastofnunar.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi sveitarfélags á tímabilinu frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

Norðurþing (breyting á viðmiðum um úthlutun, vinnsluskylda innan sveitarfélags).

Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Kópaskers og Raufarhafnar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli sem landað er í sveitarfélagi úr fiskiskipum sem ekki eru skráð innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1.september 2023 til 31. ágúst 2024.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 28. febrúar 2024.

 

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 1. mars 2024