Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 846/2018

Nr. 846/2018 24. september 2018

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 848/2014 um sérstök skilyrði fyrir innflutningi á okru og karrílaufi frá Indlandi.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/941 frá 2. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum sem eru ekki úr dýraríkinu og framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 885/2014.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/941 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. september 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 25. september 2018