Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1532/2021

Nr. 1532/2021 13. desember 2021

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað tölunnar „50“ í lok 1. mgr. I. liðar 1. gr. reglnanna kemur: 40.

 

2. gr.

Í stað 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. reglnanna koma tveir málsliðir, svohljóðandi: Fjöldi nýrra nem­enda í MA-námi til starfsréttinda í félagsráðgjöf takmarkast við töluna 40. Deildinni er þó heimilt að taka inn allt að 60 nemendur ef aðstæður leyfa að mati forseta fræðasviðsins.

 

3. gr.

3. gr. a. reglnanna, um takmörkun á fjölda nemenda í námsgreinar stjórnmálafræðideildar, fellur brott.

 

4. gr.

Á undan orðunum „í hjúkrunarfræði“ í 1. málsl. 7. mgr. 5. gr. reglnanna komi: í 240 eininga námi.

 

5. gr.

Í stað tölunnar „6“ í lok 2. mgr. 7. gr. reglnanna kemur: 5.

 

6. gr.

Í stað tölunnar „2“ í lok 1. málsl. 2. mgr. 8. gr. reglnanna kemur: 4.

 

7. gr.

Í stað tölunnar „3“ í lok 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. a. reglnanna kemur: 2.

 

8. gr.

Í stað tölunnar „18“ í lok 1. málsl. 1. mgr. 9. gr. reglnanna kemur: 15.

 

9. gr.

Í stað tölunnar „20“ í lok 1. mgr. 9. gr. b. reglnanna kemur: 18.

 

10. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræða­sviða, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi og taka til háskólaársins 2022–2023.

 

Háskóla Íslands, 13. desember 2021.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021