Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1404/2020

Nr. 1404/2020 23. desember 2020

GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Við skráningu kattar skal greiða skráningargjald kr. 2.927.

Fyrstu 6 mánuði frá staðfestingu gjaldskrár þessarar er skráningin gjaldfrí.

 

2. gr.

Árlega skal greiða eftirlitsgjald vegna kattar kr. 5.850. Gjaldið á að standa undir kostnaði vegna ormahreinsunar ef framvísað er staðfestingu á að ormahreinsun hafi verið framkvæmd lækkar gjaldið um 50%.

 

3. gr.

Af köttum sem handsamaðir eru og fluttir í gæludýrageymslu Dalvíkurbyggðar samkvæmt 12. gr. samþykktar um kattahald í Dalvíkurbyggð nr. 17/2013 skal greiða handsömunar-, fóður- og vist­unargjald samkvæmt gjaldskrá þessari. Ef köttur er ekki örmerktur samkvæmt 8. gr. sömu sam­þykktar ber einnig að greiða þann kostnað gegn beiðni til dýralækna sem framkvæma slíkt.

 

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs kattar ber að innheimta kr. 5.850 vegna handsömunar og kr. 924 fyrir hvern dag sem köttur er vistaður í kattageymslu fyrir fóður og vistun. Gjald fyrir örmerkingu kattar fer eftir gjaldskrá viðkomandi dýralæknis hverju sinni.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar, með heimild í 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.

 

6. gr.

Gjaldskráin uppfærðist haustið 2020 og hækkaði um 2,7% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar.

Samþykkt í landbúnaðarráði Dalvíkurbyggðar 24. september 2020 og í sveitarstjórn Dalvíkur­byggðar 24. nóvember 2020.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2021.

 

Dalvíkurbyggð, 23. desember 2020.

 

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2020