Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 838/2015

Nr. 838/2015 9. september 2015

AUGLÝSING
um breytingu á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviðum með aðalnámskrá grunnskóla.

1. gr.

Með vísan til 24. og 25. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, með áorðnum breytingum, staðfestir mennta- og menningarmálaráðherra hér með eftirfarandi breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og greinasviða með aðalnámskrá grunnskóla:

  1. Í stað kafla 9.4. Viðmið um námsmat í grunnskóla og kafla 9.5. Tengsl við hæfniþrep í framhaldsskóla í aðalnámskrá grunnskóla, sbr. auglýsingu nr. 760/2011, koma nýir kaflar með sama heiti, sem birtir eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
  2. Í stað kafla 18.4. Matsviðmið í lykilhæfni við lok grunnskóla í greinasviðum aðalnámskrár grunnskóla, sbr. auglýsingu nr. 364/2013, kemur nýr kafli með sama heiti, sem birtur er á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytis.

2. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 9. september 2015.

Illugi Gunnarsson.

Ásta Magnúsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

 


B deild - Útgáfud.: 24. september 2015