Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 731/2023

Nr. 731/2023 21. júní 2023

REGLUGERÐ
um (6.) breytingu á reglugerð nr. 1239/2018 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Á eftir 4. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein:

Tæknifrjóvgun hefst með því að kynfrumum, eggi eða sæði, er safnað. Kynfrumur eru ýmist frystar eða egg frjóvgað og tilbúnir fósturvísar frystir eða settir upp. Hverri meðferð lýkur með einni upp­setningu fósturvísis eða fósturvísa, óháð því hve margir fósturvísar kunna að hafa orðið til í ferlinu.

 

2. gr.

B-liður 3. tl. 3. gr. reglugerðarinnar skal orðast svo: Fyrir að þýða egg og frjóvga, sbr. a-lið 3. tl., eða eina uppsetningu á fósturvísi sem hefur verið frystur.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkra­tryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 21. júní 2023.

 

Willum Þór Þórsson.

Guðlaug Einarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 10. júlí 2023