Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 177/2023

Nr. 177/2023 10. febrúar 2023

GJALDSKRÁ
fyrir stuðningsþjónustu í Múlaþingi samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.

1. gr.

Almenn heimilisstörf.

Þjónustuþegar greiða fyrir aðstoð við almenn heimilisstörf.

Fullt gjald fyrir stuðningsþjónustu er kr. 2.272 fyrir hvern unninn tíma. Aldrei er þó innheimt fyrir meira en 10 klst. á mánuði. Þjónusta umfram það er gjaldfrjáls. Mögulegt er að sækja um lækkun gjalds og skal það metið sérstaklega af starfsmönnum fjölskyldusviðs samkvæmt viðmiðum í fylgi­skjali með gjaldskrá þessari. Viðmiðunarupphæðir taka breytingum í samræmi við breytingar á bótum almannatrygginga og vísitölu neysluverðs sem reiknast frá 1. desember ár hvert.

Afsláttur af gjaldi fyrir aðstoð við almenn heimilisþrif.

Afsláttur eða niðurfelling gjalda er metin samkvæmt innsendum tekjuupplýsingum/skattframtali árlega. Starfsmaður fjölskyldusviðs kallar árlega eftir tekjuupplýsingum. Kjósi þjónustuþegar af ein­hverjum ástæðum að skila ekki inn tekjuupplýsingum greiða þeir fullt gjald. Undanþága frá gjaldi gildir ekki fyrir heimsendan mat.

Stuðningsþjónusta vegna fatlaðra barna er gjaldfrjáls.

 

2. gr.

Heimsendur matur.

Þjónustuþegar greiða fyrir heimsendan mat.

Hver skammtur kostar kr. 1.208.

 

3. gr.

Daggjald í dagvist aldraðra.

Samkvæmt reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra, með síðari breytingum 2021, er dag­gjald kr. 1.313.

 

4. gr.

Fæðisgjald.

Fæðisgjald í Stólpa, hæfingu/iðju, er kr. 750 á dag.

 

5. gr.

Útlagður kostnaður vegna félagslegs stuðnings.

Notandi stuðningsþjónustu greiðir eigin kostnað vegna frístundastarfs sem hann tekur þátt í með stuðningsaðila. Fjölskyldusvið Múlaþings endurgreiðir stuðningsaðila útlagðan kostnað gegn fram­vísun kvittana, að hámarki kr. 7.000 á mánuði. Sveigjanleiki er varðandi það að nýta fjármagn frá mánuði til mánaðar, þó ekki á milli ára.

 

6. gr.

Garðsláttur.

Umsækjendur sem metnir eru í þörf fyrir stuðningsþjónustu geta átt rétt á allt að þremur gjald­frjálsum garðsláttum yfir sumarið að uppfylltum eigna- og tekjumörkum skv. gjaldskrá þessari.

 

7. gr.

Snjómokstur.

Umsækjendur sem metnir eru í þörf fyrir stuðningsþjónustu geta átt rétt á snjómokstri. Greitt er fyrir snjómokstur skv. gjaldskrá þjónustumiðstöðva í Múlaþingi.

 

8. gr.

Innheimta.

Gjöld eru innheimt mánaðarlega. Greiðsluseðlar berast ekki heim með pósti nema þess sé sérstak­lega óskað.

 

9. gr.

Tekjumörk.

Við ákvörðun tekjumarka fyrir árið 2023 er miðað við fjárhæðir bóta almannatrygginga 1. janúar 2023.

 

10. gr.

Gildistaka og lagastoð.

Gjaldskrá þessi, sem er sett í samræmi við 26. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 52/2022 fyrir stuðningsþjónustu í Múla­þingi sam­kvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 8. febrúar 2023.

 

Múlaþingi, 10. febrúar 2023.

 

Björn Ingimarsson sveitarstjóri.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 24. febrúar 2023