Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 13/2019

Nr. 13/2019 11. janúar 2019

AUGLÝSING
um (1.) breytingu á gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands, nr. 1241/2018, fyrir tæknifrjóvgun sem ekki hefur verið samið um.

1. gr.

Við 1. mgr. 2. gr. gjaldskrárinnar bætist nýr gjaldskrárliður:

57-062-10 Afþíðing og frjóvgun eggja 336.000 kr.

2. gr.

3. mgr. 2. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:

Ef ekki er unnt að ljúka meðferð skv. 2. tl. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1239/2018, sem hafin er, greiða Sjúkratryggingar Íslands 10% kostnaðar.

3. gr.

Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskránni, sem sett er með stoð í 1. mgr. 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar og reglugerð nr. 1239/2018, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, öðlast þegar gildi.

Sjúkratryggingum Íslands, 11. janúar 2019.

María Heimisdóttir.

Katrín E. Hjörleifsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. janúar 2019