Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 972/2023

Nr. 972/2023 7. september 2023

REGLUR
Fjallabyggðar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.

I. KAFLI

Almennt um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.

1. gr.

Lagagrundvöllur.

Í reglum þessum er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. VII. og VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og 4. og 5. tl. 8. gr. sem og IV. kafla laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

Í reglum þessum er fjallað um þjónustu samkvæmt framangreindum lögum. Orðið stuðningur er í reglum þessum notað yfir þá þjónustu sem fellur undir framangreind ákvæði.

 

2. gr.

Markmið.

Stuðningurinn er til handa foreldrum eða forsjáraðilum við uppeldi barna eða til að styrkja þá í uppeldishlutverki sínu svo þeir geti búið börnum sínum örugg og þroskavænleg uppeldisskilyrði. Einnig er stuðningurinn til handa börnum og fjölskyldum þeirra sem þurfa aðstoð vegna fötlunar, skerðinga, langvinnra veikinda og/eða félagslegra aðstæðna.

Lögð skal áhersla á að styrkja fatlaða foreldra við að halda heimili og taka þátt í samfélaginu. Leggja ber áherslu á sérhæfða ráðgjöf og félagslegan stuðning til að hvetja til félagslegrar þátttöku.

Þegar börnum er veittur stuðningur skal hafa það að leiðarljósi sem er viðkomandi barni fyrir bestu og stuðlar að félagslegri aðlögun þess og þroska.

Stuðningur samkvæmt reglum þessum skal ætíð koma fram í stuðningsáætlun eða einstaklings­bundinni þjónustuáætlun, eftir því sem við á hverju sinni og vera í eðlilegu samhengi við aðra aðstoð.

 

3. gr.

Stuðningur.

Stuðningur fyrir börn og fjölskyldur er til handa þeim sem þurfa aðstoð vegna félagslegra aðstæðna, skertrar getu, álags, veikinda eða fötlunar. Stuðningur samkvæmt reglum þessum er veittur bæði innan heimilis og utan. Stuðningur skal ávallt metinn í samhengi við heildarmat allrar þeirrar þjónustu sem veitt er til barns og fjölskyldu þess.

Við veitingu stuðnings til fjölskyldna skal ætíð leita eftir sjónarmiði barns eftir því sem aldur þess og þroski leyfir.

Um umfang stuðnings skv. liðum a, b, og c í grein þessari vísast til 26. gr. laga um félags­þjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, þar sem fram kemur að aðstoð geti numið samanlagt allt að 15 klukku­stundum á viku. Hámarksstuðningur er aldrei veittur nema þegar um umfangsmiklar þjón­ustu­­þarfir er að ræða að mati félagsmáladeildar Fjallabyggðar.

Um er að ræða eftirfarandi stuðning:

  1. Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf: Markmið með foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf er að aðstoða og leiðbeina foreldrum eða forsjáraðilum við að tryggja þroskavænleg uppeldis­skilyrði og aðbúnað barna. Stuðningur getur verið veittur hvort sem er innan eða utan heimilis, s.s. við skipulag og ráðgjöf. Allur stuðningur miðar að því að mæta mismunandi þörfum foreldra og að því að valdefla þá í hlutverki sínu.
  2. Einstaklingsstuðningur fyrir 6-17 ára: Markmið með einstaklingsstuðningi er að rjúfa félags­lega einangrun, efla lífsleikni, samfélagsþátttöku og efla börn til aukinnar sjálfs­hjálpar. Einstakl­ings­stuðning má útfæra í formi hópastarfs þar sem tvö eða fleiri börn eru saman ef það hentar barninu betur og þjónar þeim markmiðum sem unnið er að. Einstaklings­stuðningur getur numið að hámarki 20 klst. á mánuði.
  3. Stuðningsfjölskylda fyrir 4-12 ára: Markmið með stuðningsfjölskyldu er að styðja foreldra eða forsjáraðila í uppeldishlutverki sínu og/eða styrkja stuðningsnet barns eftir því sem við á og auka möguleika barnsins á félagslegri þátttöku. Dvöl hjá stuðningsfjölskyldu getur að hámarki verið þrír sólarhringar á mánuði sem reiknast að hámarki sem 36 stundir á mánuði og er veitt samkvæmt sérstöku mati félagsmáladeildar þegar um umfangsmikinn vanda er að ræða. Um umfang stuðnings skv. liðum d, e, f og g í grein þessari vísast til IV. kafla laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Hámarks­stuðningur er aldrei veittur nema þegar um umfangsmiklar þjónustuþarfir er að ræða að mati félagsmála­deildar Fjallabyggðar.
  4. Einstaklingsstuðningur fyrir 6-17 ára: Markmið með einstaklingsstuðningi er að rjúfa félags­lega einangrun, efla lífsleikni, samfélagsþátttöku og efla börn til aukinnar sjálfs­hjálpar. Einstaklings­stuðning má útfæra í formi hópastarfs þar sem tvö eða fleiri börn eru saman ef það hentar barninu betur og þjónar þeim markmiðum sem unnið er að. Einstaklingsstuðningur getur að hámarki numið 20 klst. á mánuði sem kemur þá til viðbótar þjónustu skv. b-lið þessarar greinar, samtals 40 klst. á mánuði.
  5. Stuðningsfjölskylda fyrir 0-17 ára: Um stuðningsfjölskyldur gilda reglur Fjallabyggðar um þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra.
  6. Skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni: Um skammtímadvöl gilda reglur Fjalla­byggðar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
  7. Beingreiðslusamningar/notendasamningar: Barnafjölskyldur sem metnar hafa verið í þörf fyrir stuðnings- og/eða stoðþjónustu geta sótt um að þjónustan sé útfærð skv. beingreiðslu­samningi/notendasamningi. Um slíka samninga gilda reglur Fjallabyggðar um beingreiðslu­samninga.

 

4. gr.

Skilyrði fyrir samþykkt.

Eftirfarandi skilyrði skulu uppfyllt til að umsókn sé samþykkt:

Umsækjandi og barn sem umsókn lýtur að skulu eiga lögheimili í Fjallabyggð meðan þjónustan er veitt.
Umsækjandi skal hafa forsjá barns sem umsókn lýtur að.
Umsækjandi og barn hans skulu vera metin í þörf fyrir stuðning samkvæmt matsviðmiðum 2. mgr. 6. gr. í reglum þessum og skal mat framkvæmt með barni.
Hafi komið til könnunar máls samkvæmt V. kafla barnaverndarlaga nr. 80/2002 skal henni vera lokið. Niðurstaða könnunar að mati barnaverndarþjónustu sýni þörf fyrir félagslegan stuðning, en mál verði ekki unnið áfram á grundvelli barnaverndarlaga.

 

II. KAFLI

Umsóknir og mat.

5. gr.

Umsókn.

Sótt er um ráðgjöf og stuðning í gegnum þjónustugátt Fjallabyggðar. Beiðni um þjónustu getur einnig komið frá starfsfólki heilbrigðis- og/eða velferðarþjónustu.

Að fenginni umsókn er umsækjanda boðið viðtal. Ráðgjafi metur stuðningsþörf umsækjanda skv. 6. gr. reglnanna og veitir ráðleggingar um þá þjónustu sem getur komið til móts við þarfir hans. Þegar um endurnýjun á umsókn er að ræða, eða ef breytingar verða á þjónustuþörf er það mat félags­mála­­deildar hvort boða þurfi umsækjanda í viðtal eða ekki.

 

6. gr.

Mat á stuðningsþörf.

Mat á stuðningsþörf er gert í samvinnu við umsækjanda og tekur mið af þörfum fjölskyldunnar. Mat á stuðningsþörf getur farið fram á heimili umsækjanda eða á öðrum vettvangi umsækjanda sé þess kostur. Niðurstaða mats skal koma fram í áætlun máls. Við mat á stuðningsþörf er horft til heildar­aðstæðna fjölskyldunnar og skipulags daglegs lífs.

Við mat á þörf og forgangsröðun skal líta til eftirfarandi atriða:

Félagslegra aðstæðna.
Samfélagsþátttöku og virkni.
Félagslegrar færni.
Styrkleika.
Athafna daglegs lífs.
Heilsu.
Hegðunar.
Annarra mikilvægra upplýsinga.

Sé niðurstaða mats sú að aðstæður barns og fjölskyldu séu með þeim hætti að ekki sé þörf á stuðningi samkvæmt reglum þessum er umsókn synjað.

 

7. gr.

Stuðningsáætlun.

Áður en stuðningur hefst skal gera stuðningsáætlun eða einstaklingsbundna þjónustuáætlun eftir því sem við á. Þar skal m.a. koma fram gildistími samþykktar, hvers konar stuðningur verði veittur, verkefni og vinnutilhögun. Stuðningurinn skal ætíð byggja á skýrum markmiðum og koma skal fram hvernig árangur verði metinn.

Í þeim tilvikum sem stuðningsþörf er viðvarandi samkvæmt lögum nr. 38/2018, skal 12 mánuðum áður en umsækjandi nær 18 ára aldri liggja fyrir áætlun um áframhaldandi stuðning.

 

8. gr.

Forgangsröðun umsókna.

Ef fyrirséð er að stuðningur skv. d–g-lið 3. gr. geti ekki hafist innan þriggja mánaða skal umsókn sett á biðlista. Umsækjandi er upplýstur um áætlaða lengd á biðtíma og hvaða stuðningur standi honum til boða á biðtímanum, sbr. ákvæði reglugerðar um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma eftir þjónustu, nr. 1035/2018, ef við á.

 

III. KAFLI

Framkvæmd.

9. gr.

Tími stuðnings.

Þjónusta samkvæmt reglum þessum er ekki veitt að næturlagi. Þó er þjónusta stuðnings­fjölskyldu, skv. c- og e-lið 3. gr. og skammtímadvöl skv. f-lið 3. gr. almennt veitt allan sólar­hringinn.

 

10. gr.

Gildistími og endurmat.

Þegar stuðningur hefst skal gerð stuðningsáætlun og stuðningur samþykktur til ákveðins tíma, í fyrsta skipti til þriggja mánaða en að þeim tíma liðnum skal endurmeta fyrirkomulagið með tilliti til framlengingar. Eigi sjaldnar en á sex mánaða fresti skal árangur metinn, gerðar viðeigandi breyt­ingar eða stuðningi lokið. Þegar breytingar verða á aðstæðum og högum fjölskyldu skal endur­meta stuðn­ings­þörf.

Í þeim tilvikum sem stuðningsþörf er viðvarandi samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk, er heimilt að samþykkja þjónustu til tveggja ára.

 

IV. KAFLI

Málsmeðferð og ákvörðun.

Um málsmeðferð gilda ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, ákvæði XVI. og XVII. kafla
laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991 og ákvæði VII. kafla laga um
þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

11. gr.

Könnun á aðstæðum.

Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn berst. Félagsmáladeild skal taka ákvörðun í máli án óhóflegra tafa og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin. Þegar fyrirsjáanlegt er að afgreiðsla máls muni tefjast ber að skýra aðila máls frá því. Skal þá upplýsa um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.

 

12. gr.

Samvinna við umsækjanda.

Við meðferð umsóknar, öflun gagna og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er en að öðrum kosti við lögráðamann eða persónulegan talsmann hans eftir því sem við á. Leita skal eftir afstöðu barns eða eftir atvikum hafa samráð við það, eftir því sem aldur og þroski þess leyfir, þó skal starfsmaður félagsmáladeildar ávallt hitta barnið áður en ákvörðun um þjónustu er tekin.

 

13. gr.

Endurskoðun.

Rétt til stuðnings samkvæmt reglum þessum má endurskoða hvenær sem er. Meta skal hvort umsækjandi fullnægi skilyrðum reglna þessara og hvort breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda og/eða annarra heimilismanna hafi áhrif á rétt hans og umfang þjónustu.

 

14. gr.

Rangar eða villandi upplýsingar.

Ef sannreynt er við meðferð máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi, stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar á meðan umsækjanda er gefið tækifæri til að leiðrétta eða bæta úr annmörkum.

Ef umsókn um stuðningsþjónustu er lögð fram á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hálfu umsækjanda veldur það synjun umsóknar eða getur leitt til afturköllunar ákvörðunar.

 

15. gr.

Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.

Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfs­menn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er leynt eiga að fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi. Þagnarskylda helst eftir að starfsmaður lætur af störfum.

Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.

Vinnsla mála og varðveisla gagna byggist á lögum um persónuvernd og vinnslu persónu­upplýsinga, nr. 90/2018 og lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014.

 

16. gr.

Leiðbeiningar til umsækjanda.

Við afgreiðslu umsóknar skal félagsmáladeild bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Þá skal starfsfólk einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna framkvæmdar sam­kvæmt reglum þessum.

Sérstaklega skal gætt að frumkvæðisskyldu, sbr. 32. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

 

17. gr.

Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.

Félagsmáladeild tekur ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði félagsmálanefndar.

 

18. gr.

Niðurstaða og rökstuðningur synjunar.

Kynna skal niðurstöðu vegna afgreiðslu umsóknar með skriflegum hætti svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn synjað skal umsækjandi fá skriflegt svar þar sem vísað er með skýrum hætti til við­eigandi ákvæða reglna þessara og leiðbeint um heimild til að óska rökstuðnings fyrir synjun.

Upplýsa skal umsækjanda um rétt hans til að fara fram á endurskoðun synjunar. Umsækjandi getur áfrýjað ákvörðun félagsmáladeildar til félagsmálanefndar innan fjögurra vikna frá því honum barst vitneskja um ákvörðun.

 

19. gr.

Málskot til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Ákvörðun félagsmálanefndar skal kynnt umsækjanda skriflega og samhliða kynntur réttur hans til að kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar velferðarmála. Umsækjandi getur kært synjun félags­mála­nefndar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að umsækjanda var kunngerð ákvörðun félagsmálanefndar.

 

20. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar kveða á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita og eru settar með stoð í VII. og VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, 8. gr. sem og IV. kafla laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 og barnavernd­ar­lögum nr. 80/2002. Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Samþykkt í félagsmálanefnd Fjallabyggðar, 29. nóvember 2022.

Samþykkt á 223. fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar, 15. desember 2022.

 

Fjallabyggð, 7. september 2023.

 

Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 21. september 2023